Færsluflokkur: Bloggar

Pervertar og Klámhundar.... Um allt.... Æskan í hættu....

Þetta eru tæpar 9 mínutur sem gætu bjargað ykkur fyrir horn... Þeir voru svo sannarlega með svörin 1965....

Núna er allt síðast.

Síðasti sunnudagsmaturinn hérna megin. Ég ætla að byrja að flytja á morgun og á eftir að gera ALLT.... Hehehe spennuhnútur í maganum og alles. Ég er svona að spá hverning þetta verður allt saman þarna úti og held að það þýðir nú mest lítið. En það var nú lítið sofið þessa helgina útaf plönum og hlaupum um allann bæ að redda hinu og þessu. Rúmið er þó komið og svona drasl. En ég veit ekki. Furðulegt að byrja svona aftur á byrjunnarpunkti, en ekkert þó slæmt við.

En ég ætla að halda áfram að redda þessu öllu saman... 

128285394416562500brrraaaiiinnnss


Erum við öll þjófar...

Heyrðu... Ég er búinn að vera að spekúlera í óheiðarleika... Semsagt útfrá umræðunni um Torrent og allt það. Ég held nefnilega að fólk skynji ekki eða hreinlega sé með lagskipta óheiðarleikaköku... Það að fá efni úr tölvunni er bara sjálfsagt hugsar fólk.. Það er ekki efnislegt bara upplýsingar sem er ekki hægt að halda á... Svipað og borga ekki Ruv fasistagjöldin sem margir líta á sem lítinn óheiðarleika...

Eins með kveikjara... Sumum finnst alltilagi að nappa kveikjara... Lítill óheiðarleiki... En ef það er keypt nammi fyrir 170 kall (andvirði kveikjara) og því nappað þá er það stór óheiðarleiki...

Mig langaði bara að athuga hvað ykkur finnst þarna úti... Er í alvöru einhver algerlega heiðarlegur... Eða erum við bara mismunandi óheiðarleg.... 


Tímabundin List.

Ég get bara ekki annað en borðið virðingu fyrir þessu... Hjálpi mér hvað þetta er ótrulegt listform. Stendur í þann tíma sem er nógu kalt og enginn getur keypt þetta til að verða stöðutáknskeppandi í menningarheimum... List á að vera einnota og hverfa fljótt.... Svona list það er að segja...
mbl.is 400 tonn af klaka og 300 tonn af snjó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undarlegur póstur....

Ég fékk póst frá undarlegum einstakling sem vildi endilega fá fleiri upplýsingar um "Skemmdarvarginn" Banksy... Þanning að ég set inn þetta fimm mínótna myndband með nokkrum myndum....

En þetta er bara þanning einstaklingur að það er ekki hægt að hafa upp á honum né nokkuð. Einhver þóttist nú hafa náð mynd af honum um daginn, en það var víst ekki svo. Þanning að þessi And-hetja heldur áfram að fljúga um bæinn sumum til ama, öðrum til ómældrar ánægju... Bara svona eins og list á að gera... Vekja fólk til umhugsunnar og fá nýjar hugmyndir til að fæðast.

Mér finnst líka alltaf fyndið hvað þeir sem berjast mest gegn honum Banksy yfirleitt fara að hylla hann þegar fólk kynnir sér aðeins verkin hans og sér hvað maðurinn er búinn að gera mikið og skilja margt eftir hingað og þangað um heiminn.

Ég er allavega einn af þeim sem bíð sífellt eftir að hann poppi upp hér og skilji eftir sig eitt af aðalmerkjum sínum það er rottan

En hérna er þá videó með smá yfirliti. Og vinsamlegast hafið opið huga ef ykkur er illa við "krot" og "krass".... Heimurinn þarf smá svona list til að aðeins hreyfa við manni þegar maður klónast um borgir og byggðir....

 


Götulist. Bara fyrir augað.

Jæja fyrst það er komin helgi þá er komin tími á smá götulist. Bara að reyna enn og aftur að sýna ykkur þarna úti að það er ekki bara krass og krot þarna úti, heldur leynist inn á milli listaverk. Það mætti alveg eins og skella upp einni og einni mynd. En ég hef þó tekið eftir nokkrum sem ég á eftir að festa mynd á. Eins og t.d á veggnum þarsem leikbúðin er á laugaveginum ská á móti þarsem 22 voru. Þar er einmitt ein alger snilldarmynd. En annars var ég bara að velta mér úr bælinu og ætla á röltið aðeins fram eftir degi.

banksy-5 Ísrael West Bank Veggurinn... Þessi skelfingar veggur er þó aðeins áhorfanlegri með þessu verki eftir Banksy.

 

 

 

 

 

degraw3 Og ekki væri dónalegt að vera svo heppinn að fá að búa í þessari höll... 'oþekktur listamaður...

 En ég mæli eindregið með því að hafa augun opin á röltinu. Þó svo þessar myndir sem ég set inn núna séu ekki frá eyjunni okkar þá eru nú þónokkur verulega góð verk hér heima.

Og ég smelli nú kannski nokkrum inn... Annars bara góðan  dag í dag. Wink

 

 

 degraw2

 

 

 

 


Skrifa undir esskurnar mínar.

Við viljum ekki enda uppi sem ljósaskreyting á veröndinni hjá Birni Bjarna.... Þanning að skrifið undir hér.

 

Annars óska ég ykkur öllum góðrar helgar. Er farinn að finna dót í húsið mitt hehehe.

thompson_edge_detail


Heimsboðskapur....

Ef þér er illa við yndislega, hugsandi homma þá ekki opna þetta.... Ef þig langar aftur á móti að kynnast yndislegum gaur með frábæran boðskap þá klikkaru hér...

http://www.breaktheillusion.com/

Og æææææææ ég kann ekki enn á þetta klipp og cut og copy dót.... Sorry..... 


Heheheh æðislegt....

HAHHHA ég get svo svarið að þetta er einmitt ástæða þess að nágrannar mínir horfa alltaf undarleg á mig... Ekkert nema keðjusagarhljóð og skerandi öskur alla daga.... Bara snilld.
mbl.is Hjálparkall vegna hryllingsmyndar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki hengja mig Konur....

Ég einmitt rakst á þetta á þeyting mínum um víðilendur alheimsupplýsingavefsins.... Þetta er bara fyndið. En ég ætla að henda alltaf inn einu og einu svona myndbandi. Ég varð bara að henda þessu inn núna...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband