Færsluflokkur: Bloggar

Tilkynningaskylda.

Frekar fyndið... Nú er ég búinn að vera alnetslaus og það er bara stórsniðugt hehehe. Ekki það að ég ætli endanlega að flytjast inn í Ketheima heldur er bara ágætt að vera svona ótengdur. Er bara búinn að vera að skera út og mála og alles. Ætli maður smelli ekki inn kannski nokkrum myndum af afleiðingum af leiðindum mínum á því sviði hahaha.

Nei en án alls gríns þá er nú bara hreinlega eins og það vanti á mann útlim eða eitthvað þegar maður er ekki með þetta blessaða blogg virkt heima. Maður er nú farinn að sakna þess að lesa yfir hjá ykkur esskurnar.

En það er nú ekki langt í þetta þanning að maður fer nú að sjást meir hérna. En annars langaði mig bara að þakka innlitið og kveðjurnar frá ykkur öllum og óska ykkur þessa hefbundna dót... Jólastöff og yfirát bíður handans hornins og verður það gleði mikil.

En verið nú áfram yndisleg og ég get ekki beðið eftir að vera hér daglega aftur...  


Lifi enn.

Hey hey allir saman. Hvað haldið þið að ég smelli mér bara ekki i einhverja tölvu hérna í bæ og smelli inn svosem einni svona HÆHÆ allt er í góðu færslu. Mikið er nú hræðilega hrikalegt að vera ótengdur og alnetslaus hehehe. Ég er bara annars búinn að vera húsmæðrast og vesenast eins og óð fluga síðustu daga og er hérumbil innfluttur með allt. Og er þetta bara pínulítið himnaríki hér í bæ. Snilld. Annars er þetta bara stutt innlit, langaði bara að hrópa hey á ykkur öll og bíð enn netsins heima...

BæBæ.

23345738Í bili.

Við börðum þessa gæja í klessur... Varúð ekki fyrir viðkvæma... hehehe...

  Jebb. Rafdrottin Vor Hann Dabbi hringdi í mig einn góðan veðurdag og bað um hvort ég gæti ekki mætt á tiltekinn stað og missþyrmt tveim mönnum. Og nátturulega gat ég ekki annað en sagt já. En þarsem um var að ræða tvo gaura ákvað ég að hringja í Harðhenta ofurvinkonu mina hana Jónu og fá hana í lið með mér. Hehehe. Og mætum við á tiltekin stað með poka fullann af tólum og tækjum og dundum okkur við að misþyrma þessum greyjum með gerviblóði og latex og allskonar leikhúsgræjum. Jebb þetta var nefnilega verkefni Dabba i kvikmyndaskólanum og vildi hann fá meikup aðstoð frá okkur :) Sem ég var voða montinn yfir. En þetta er einmitt vinnann sem ég ætla að vinna við þegar skólinn hérna heima er búinn. Jebb jebb. Kannski ég plati nú Dabba til að setja nú myndina sína hérna inn svo þið getið barið hana augum... Annars bara bæ og eigið góðann dag :)

l_33667db3e4b9da04de90e5de3efbceec

l_aaddd9b9d106819d41e64a7ced3c2f2f l_885dbd9727dfdd0cf22e6c310a4f1f0c


Ands. RUGL.....

Við vitum þetta og höfum vitað í áraraðir.... Hverning væri að ræða LAUSNIR á vandanum. T.d fólk sem er á vergangi, börn... já BÖRN niðri 12 á sprautunni.... Það er að deyja fólk hingað og þangað um Reykjavík meðan þetta lið situr og ræðir um "vandann" án nokkura niðurstaða. Ands. ég er kokfullur af pirring og fleira í sambandi við þetta lið.... Svoloks þegar einhver kemur með lausn þá er það ekki nógu gott afþví það á eftir að ræða hana í 3-5 ár....... Á meðan missum við fleiri og fleiri.... Drullist með hausinn útur brúna gatinu og GERIÐ EITTHVAÐ ANNAÐ EN AÐ RÆÐA SAMAN ENDALAUST.... Eyðið peningum í vandalausnir í staðinn fyrir kaffibolla og bakkelsi fyrir umræður......Angry
mbl.is Hinar raunverulegu varnir Íslands eru gegn fíkniefnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimurinn hefur nú þroskast smá sem betur fer.

Alveg hreint ótruleg Heimildarkynningamyndbönd frá 19050 um hætturnar sem fylgja samkynhneigðum.... Segið svo að heimurinn sé nú ekki búinn að breytast til batnaðar... Það væri nú aldeilis uppákoma ef þetta væri sýnt í skólum í dag....

 


Smá bara smá...

Jæja þá dregur aðþví að maður þarf að skella sér úti í heiminn aftur.... Ég stóð inní litlu nýju íbúðinni áðan og það var bara snilld. Pínueldhús og bað og risastofa sem er nú samt svefnherbergi líka. Jebb hún er nú ekki stærri enþað, en það er nóg pláss fyrir mig og Örverpið sem flytur inn með mér... (Kisalingurinn).

En samt er þetta skrýtið að flytja héðan þarsem ég hef búið með fullt af gaurum á áfangaheimili í tæpt ár og 3 mánuði... Maður kemur heim og er þá bara einn heima... Með Örverpinu... En það er snilld að byrja aðeins á þessu öllu aftur og er maður einhvernveginn miklu stemmdari í þetta skiptið... Vonandi síðasta skiptið...

En núna þarf ég að rjúka að mæla og bera og burðast með allskyns dót og drasl og býð ykkur bara góðan dag...  


Stuð-Menn Sökka...

Bara að minna á Rafbyssulistann

eyeface Höfum nú auga með þessari "stjórn" hérna heima....


Heimakennsla 'I Sieg Heil Nasisma.

white_flour Það er nefnilega mikið meira á bakvið þessi merki sem Nasistar stálu og heimfærðu upp á sina eigin geðveilu...

Ef þið nennið að lesa og víkka hugan aðeins þá getið þið lesið...

Þetta 

Hitt 

Svona 

Það er nefnilega fullt af hlutum í sambandi við þessa Nasista sem er furðulegt og freaky að kynna sér þá betur.... 


mbl.is Hakakross á hundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Metall og Trú....

 Þetta er ótrúlegt videó sem sýnir á aðra höndina  moshpit hjá Machine head og hina svona Mecca trúargöngu.... Við erum nátturulega klikkuð... En  eins og  sést á þessu  myndbandi þá  virðist  vera  hægt  að  ná andlegri raðfullnægingu með málm eins og með trú. Og það get ég einmitt staðfest eftir að hafa farið á helv. góða metal tónleika þarsem hundruðir manns voru að trampa og troðast áfram hring eftir hring og eftir smástund þá dettur maður hreinlega inn á aðra vídd og rennur saman við allt í eina stóra sóðalega kjöthrúgu.... Já nei... ekki þanning kjöthrúgu dónarnir ykkar... Hehehe...

Áfram með MÁLMINN....


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband