Færsluflokkur: Bloggar

Lemjum Löggur...

Alltaf gott að vita að maður býr í réttarríki þarsem Glæpamenn og 'oaldarlýður gengur laus og fær klapp á bakið fyrir afbrot sín... Svo bara ef einhverjir menn sem eru að trufla mann þá bara gefa þeim einn gúmorren beint á kjálkann. Og það sorglega er að löggugreyin sem eru að vinna fyrir réttarríkið fá ekki einu sinni almennilega framkomu frá lögvaldssetjurum.

Stokka aðeins upp í þessum málum öllum og hreinlegast satt að segja þarf að moka flórinn í þessu svokallaða dómsvaldi sem liggur eins og dauðyfli yfir landinu og gerir yfirleitt verr en gott... Nauðgarar og níðingar fá sama sem enga dóma og er allt í henglum á þessum heimabænum...Angry  Og skilaboð með þennann dóm að berja löggugrey og fá bara fínt frí í heila 9 mánuði... Það segir sitt...


mbl.is 9 mánaða fangelsi fyrir að slá lögreglumann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mixmaster...

Jájá höldum bara áfram að krukka í öpum og öllum þessum tilfinngalausu litlu dýrum... Nei betri hugmynd, finnum upp aðferð til að fjölfalda þau bara og sjáum hvað skeður. Það hefur nefnilega ábyggilega eitthvað uppá sig að vera að krukka í sköpunnarverkinu... Persónulega lýst mér ekkert  á þetta allt saman...

En þó kannski er þetta ágætis tækni til að endumanna bara hnöttinn... Og nátturulega bara af góðum manneskjum...Alien


mbl.is Vísindamenn segjast hafa einræktað fósturvísi úr apa í fyrsta sinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bara fyrir svefninn.

l_91faec40a664615db33eb7d7ffcdbd42

Ruglleiðarinn....

Jæja, ekki það að ég sé útskrifaður úr fínum skóla né er ég með úthlutað starf frá himnafeðrinum, þá hef ég nú komið víða við og kynnst mörgu sem er kannski ekki alveg á yfirborðinu hjá "eðlilegu" fólki. Þessvegna langaði mig að eins óháð öllum trúbrögðum eða upplifunum annara að ræða aðeins um það þegar alkahólistar sem eru búnir að þróa sinn sjókdóm lengi og hafa jafnvel ekki litið edrú dag svo tugum ára skiptir. Og þá erum við að tala um að vera aldrei edrú...

Það er nefnilega svo margir sem hafa ekki kynnst þessum málum í eigin persónu og margir virðast halda að Vogur sé nú bara nóg og fara svo á fundi í sex mánuði eða svo. Jújú það auðvitað hjálpar en það er svo margt sem er að sem erfitt er að laga eða halda í skefjum.

Til dæmis eru krakkarnir sem búa hérlendis orðin útbrunninn á sál og líkama þegar ef heppnin er með skellt í meðferð... En það lagar bara likamlega partin og býr mann undir áframhaldandi meðferð fyrir huga og sál. En það er einmitt þar sem vandmálin byrja. Þetta skilningsleysi á þessum tveim edrú/neyslu menningaheimum er nefnilega mikill. Allt lífið hefur kannski byggst á því að bjarga sér fyrir horn, neyða í sig mat kannski einu sinni til tvisvar í viku og sífelldur flótti frá sjálfum sér og öðrum... Auðvitað segja margir "en þetta er bara partý" og jújú auðvitað eru þeir tímar þegar næst í skammt góðir en það er ekki nema nokkrir tímar á móti öllu þessu geðveika harki.

En það er ekki og enginn mun geta sagt að það sé góð tilfinning að standa á götuhorni og það skiptir engu máli hvert maður fer, því maður hefur engann stað til að fara á. Vera einn fastur einhvernveginn í eigin líkama og með huga sem vill einungis koma manni í gröfina. 

En í meðferð fer fólk þó sem betur fer og kemur svo út og ætlar að sigra heiminn því þegar maður stígur úr meðferð með fullann maga og hjartað fullt af von þá er ekki ský á himni. En þá tekur við það að þurfa að fóta sig í edrú samfélagi... Og það er ekkert það auðveldasta í heimi.

Maður þarf hreinlega að læra að tala upp á nýtt, því eina sem maður hefur talað um er þessi neysluheimur og allt sem tengist honum. Svo allt í einu situr maður í kringum fólk sem er statt á svo allt öðrum stað. Ég hef oft kallað það "Úthverfaliðið" því maður hefur bara aldrei heyrt um flest það sem um er rætt...

En sem betur fer er eins og segi til fundir og gott fólk þarna úti sem er reiðubúið að aðstoða mann að taka fyrstu skrefin og hafa svo auga með manni því maður verður nú að reyna að treysta á sjálfan sig svona smávegis.

En svo kemur alltaf upp svona aðstöður þegar skyndilega springur upp einhver trúarbragðabomba og það fara að myndast jafnvel klofningur í góðan hóp og fólk stekkur afstað undir fána einhvurra trúarbragða og hreinlega valtar af stað með þau skilaboð að þeirra leið sé sú eina og enginn eigi von nema þeim sé fylgt....

Og þar er það sem hættan er stærst, því eins og ég  segi þá er nú nógu erfitt að reyna fóta sig í þessari venjulegu hringiðu og maður er einfaldlega ekki búinn undir að takast á við svona "boðskap" og reglugerða trúarbragðabull og maður einfaldlega stingur af því ekki vill maður enda í forsvari einhverjar trúarsamkomu... En um leið og maður stingur af vegna svona hluta þá er bara ein leið að leita á og er það aftur út í ruglið, maður skilur það og nær að fóta sig þar...

En svo eru þeir sem eru einmitt í svona aðstæðum og geta hreinlega ekki sagt nei, því óttinn og vonleysið er orðið það mikið að maður getur ekki annað en gengið þá leið sem Trúmenninir leggja fyrir mann... Sumir ná að komast inn í þessar aðstæðu jújú, en ansi margir koma jafnvel enn verri þaðan út en þegar þeir fóru þangað inn... 

En það sem ég er að reyna að koma einhvurn veginn útur mér er að óháð öllu þá ALLS EKKI að blanda saman þessum tveim stefnum. Þetta er ekki trúabragða prógram stendur í t.d. í A.A bókinni. Og ég er ekki að segja að fólk eigi að hætta að trúa um leið og það fer á fundi, heldur að halda í trúna og nota það sem styrkir mann og hjálpar í gegnum alla þessa flækju. Þetta er oft spurning upp á líf og dauða hverning tekið er á móti fólki og verður að vara sig á að detta inn í ofsafengnar trúarpælingar eða einhverjar aðra hluti til að bjarga fólki, því ef ekki er staðið að málunum eins og þarf og á að gera þá getur það endað með enn einu mannslífinu.

Líka úti í samfélaginu þarsem það er nú ekki stærra en það er, þá þarf að veita fólki sem er innilega að reyna að vinna í sínum málum og er að gera hluti sem skila góðu smá andrúm og ekki þetta sífellda "ææ hann/hún enn að reyna þetta" og allt það kvabb sem er oft í gangi..

Ég er ekki barnanna bestur í því samt sem áður en ég reyni þó að sýna opinn hug og þolinmæði og bakka frekar með mínar skoðanir heldur en að reyna að lemja þær inn í hugann á fólki, því ég veit það er engann veginn að virka... Þessvegna vona ég innilega að það fólk sem er með trúarbragðabjörgunnar prógram geri sér grein fyrir því að Guð tekur ekki allt slæmt frá þér, heldur verður fólk að vinna í sínum málum og þróast og þroskast, í stað þess að staðna og veltast um í ekki allt of hollum boðskap að þessu leytinu til...

Enginn mannlegur máttur getur bjargað þessu og eru Guðir þessa heims það margir að hálfa væri meira en nóg... Þessvegna svíður mig það að sjá einmitt þetta vera ske... Þanning að í guðanna bænum hafið það á bak við eyrað að mannslíf eru í veði og verið ekki að taka á ykkur starf Guðs heldur verið manneskjur með opinn huga tilbúinn að taka á móti hverjum sem er óháð öllu því öll eigum við víst að vera hér á jörð hvurskyns við erum....

Okei bæbæ.... 


Bálreiður í hlátursskasti.

noblewebster2Það er alltaf gaman að finna sérstakar myndir og þessi er stórsniðug. Annars er ég bara að henda inn smá smá, það er varla að maður hafi orku eftir lyklaborðs pikkið sem gengið hefur á í dag....

Þökk sé góðum félaga mínum hann Jón Steinar sem setti inn vídeo af uppistandara sem kallaður er George Carlin þá ligg ég hérna í stórundarlegri aðstöðu... Þessi gæi er nefnilega svo óborganlega fyndinn en á sama tíma segir hann hlutina svo blákalt og maður sér allt í nýju ljósi að maður verður bálreiður...

Jebb undarleg tilfinning að liggja bálreiður í hláturskasti. En þanning eyddi ég nóttinni minni.  Mæli eindregið með því að kíkja á þessi vídeo. Gott að geta dregið hugann aðeins útur þessa siðmenntaða samfélagi svona öðru hverju....

En ég ætla að skella mér aðeins út og hrista mig aðeins... 


Mitt síðasta orð um þetta....

070Jæja ok... kannski ekki Mitt síðasta orð en sniðugt strip að öðru leyti.

...

hypocrisy

 Ótrulegt að búa í þessu landi.... Eins mikið af góðum og jákvæðum hlutum sem eru í gangi hérna þá er einmitt undarlegt að hafa horft upp á fólk ganga gegn myrkrinu í gær held ég....

Það fylgir þessu fólki ansi skrýtnar skoðanir og mikill sársauki fylgir því að horfa upp á "manneskjuna" hann Baldur Frey....

Ég er búinn að ákveða það að halda fast í minningu Magga og gera mitt besta í að festast ekki í því sem þessi maður og Gunnar félagi hans eru að lifa í dag.... 

Samt er ansi erfitt að kyngja því að hann hafi verið myrtur, sparkaður til bana í miðborginni okkar af "manneskjum". 

 

6DPRRSN3PDY4M6N5DW6UBCJ7ZRLJN45A

 Ef þessi "manneskja" Gunnar Freyr mundi sýna að hann hefði nú notað fangelsisvistina til að iðrast þá kannski væri þetta auðveldra... En svo virðist að hann komi tvíefldur út og beint inn í hóp af fólki sem stendur honum við hið....

 Ææææ...... Ég vill ekki hafa þetta í höfðinu á mér... Það er 2007 og samt er Helv. Myrkrið að grúfast yfir... Nema það er klætt í lambsgæru... Undecided


Níunda hlið Helv.

Merkilegt hvað þessi kall tekur það rólega þegar þarf að ráðast inn í land þarsem fólk á vopn og er ekki bændur í sandköstulum eins og æfingar Fjandaríkjanna hafa verið að fram að þessu.... Vonandi þurfum við ekki að lifa í gegnum enn eitt stríðið....Pinch
mbl.is Áfram unnið að því að ná friðsamlegri lausn á deilunni við Íran
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afhverju ég STYÐ niðurhal á tónlist og myndum....

piracyOg þar með er þeirri umfjöllun lokið....

Klósett-tíkurnar.....

divorcecakeBrúðkaupskaka ársins.... Hehehe ekki veit hvort þessi mundi slá í gegn á borðum fólks en hérna slægi hún í gegn. En annars er ég að þjóta að henda saman skissum á vegg á baðherbergi á krá einni hér í borg sem ég er að fara að vinna í að mála með dyggri vinkonu oss henni Jónu minni.... Þanning að við verðum víst föst í því næstu viku eða svo....

En ég verð þó með barnið með mér (lappann) svo maður geti nú poppað inn hér...  


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband