Lemjum Löggur...

Alltaf gott að vita að maður býr í réttarríki þarsem Glæpamenn og 'oaldarlýður gengur laus og fær klapp á bakið fyrir afbrot sín... Svo bara ef einhverjir menn sem eru að trufla mann þá bara gefa þeim einn gúmorren beint á kjálkann. Og það sorglega er að löggugreyin sem eru að vinna fyrir réttarríkið fá ekki einu sinni almennilega framkomu frá lögvaldssetjurum.

Stokka aðeins upp í þessum málum öllum og hreinlegast satt að segja þarf að moka flórinn í þessu svokallaða dómsvaldi sem liggur eins og dauðyfli yfir landinu og gerir yfirleitt verr en gott... Nauðgarar og níðingar fá sama sem enga dóma og er allt í henglum á þessum heimabænum...Angry  Og skilaboð með þennann dóm að berja löggugrey og fá bara fínt frí í heila 9 mánuði... Það segir sitt...


mbl.is 9 mánaða fangelsi fyrir að slá lögreglumann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég vorkenni foreldrum þínum...

Einar (IP-tala skráð) 14.11.2007 kl. 17:43

2 Smámynd: Bara Steini

Og....

Bara Steini, 14.11.2007 kl. 17:47

3 Smámynd: Ævar Eiður

Eins og framkoma lögleglunnar er oft á tíðum er það fullkomlega réttlætanlegt að gefa þeim einn á lúðurinn,  því miður!  

Þú getur barið konuna þína árum saman,  brotið í henni nokkur bein og færð stundum fyrir það 2-3mánuði inni í fangelsi,  oftast bara skilorð en ef þú slærð lögreglumann einu höggi sem hann jafnar sig af á tiltölulega stuttum tíma færðu 9 mánuði!  Konan sem var barin árum saman jafnar sig hinsvegar aldrei!

 Ef þið flettið í gegnum dómasafn héraðsdóma á íslandi sem er aðgengilegt á www.domstolar.is þá sjáið þið að það er ekki sama hvort það er Jón eða Séra Jón.

 Er almennt mjög á móti hverskonar ofbeldi en því miður á lögleglan þetta otftar en ekki,  að mínu mati,  fullkomlega skilið.   

Ævar Eiður, 14.11.2007 kl. 19:36

4 Smámynd: Bara Steini

Ég er einmitt að furða mig á þessu sem Ævar Eiður benti á. Þetta stórundarlega hugarfar með dóma hérlendis að það er varla hægt að taka mark á dómstólum. Þeir eru að manni virðist ekki að virka.

Bara Steini, 14.11.2007 kl. 22:19

5 Smámynd: Bara Steini

Það er líka spurning hverning þetta hefði farið ef dæminu yrði snúið við, löggan hefði slegið manninn og hvað kæmi útur dómnum þá...

Bara Steini, 15.11.2007 kl. 14:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband