Færsluflokkur: Bloggar

Ég losaði mig við punginn og steig inn í ljósið.

Jumm ég smellti mér á einhvurskonar ljósleiðara tengingu sem leyfir að þeytast um alnetið á ógnarhraða. Jebb, nú get ég hlaðið niður heilu bílförmunum af "ólöglegum" myndum og kikt hvað er að ske hinum megin á hnettinum með google earth og á sama tíma poppað í heimsókn til geðsjúkra hermanna að taka aðra hermenn af lífi....

Og allt í glæsilegri upplausn.... En það er málið með netið og hlustið nú. Það tekur ekki nema tvær sekundur fyrir næstum hvernsem er óháð aldri að finna þær grófustu klippur af drápum og allskyns óbjóð... Krakkar eru að senda á milli linka á msn af afhöfðun fjandarískja hermanna bara til að hneyksla hvort annað. Ekkert verið að spá í að þetta er ekki leikið heldur alvöru shæt...

Jumm siðferði hnignadi fer segja sumir meðan aðrir segja að þetta sé nú bara gott að herða hugann gegn svon óbjóð.

Ég hef rekist á hluti á þessu alneti sem fá mann til að svitna og hérumbil að finna fyrir smá flökurleika.

Og það undarlega er að þetta er mikið auðveldara að komast í en fólk heldur...

Bara að slá inn á google warcrimes... þá er maður kominn inní verstu hugarfylgsni mannkyns.

En ég veit ekki hvað ég er að kvabba um þetta.

'Eg var nú fyrr í vikunni að "leika" í atriði í Reykjavík whale watching massacre og er frekar eftir ennþá. Við félagarnir fleygðum okkur fram og aftur í heila sex tíma með Dr Spock uppá sviði. Heljarins stuð en heldur fyndið að þurfa að standa og dansa með enga tónlist eins og þegar verið var að taka upp samræður.

Þá áttum við bara að ýminda okkur tónlist og slamma eins og bestíur. Heldur fyndin sjón.

En þessi mynd fjallar einmitt um niðurbrytjun og misþyrminga morð á frakar saklausum túrhestum sem lenda í höndunum á hóp "fishbillya" sem kála þeim á einkar sniðugan hátt...

Jebb alger snilld og get varla beðið eftir að sjá þetta allt saman.

En hér að lokum er svo eitt fyndnast uppfinningadæmi sem gáfumennirnir í Pentagon vilja finna upp og er þetta í fyrsta skipti sem ég styð vopna framleiðslu hehehe.

 

 


Aumkunnarverðu 'Islendingar....

nýjasta nýtt.... Allir íslendingar rétti upp hönd... Samansafn af fáranlegu fólki sem flýgur áfram undir fána ásta og umhyggju handa öllum.... Nema sýnum eigin löndum....

Þið getið rifið kjaft yfir stjórnarfari og hræðilegri aðstöðu allra þeirra sem búa úti og vantar samastað en þegar kemur að því þá bakkið þið öll bakvið heimskar fordómafullar skoðannir........

Fólk sem kallast innflytjendur og kemur hingað til lands er búið að alast uppí miður hræðulegu umhverfi þarsem glæpir og ofbeldi hafa tekið yfir venjulegt stjórnarfar. til að þetta fólk drepist ekki úr hungri eða verra er það búið að leita í eiturlyf og glæpi til að lifa af.....

Og þetta er ekkert svona íslensk barslagsmál og hlaupa svo heim i finu fökking íbúðina sína og ekkert mál... þetta eru "glæpir" til að lifa af þarna úti til að staðfesta sína stöðu með góðu eða illu....

og haldið þið þarna úti að bara að flytja til draumaeyjunnar íslands að þá breytist allt hugarfar og hegðun eins og ekkert se....

Góðu haldið kjafti og gerið frekar gangskör í því að aðstoða þetta fólk í að leyta sér aðstoðar við að sameinast eðilegu lífi.... komast í meðferð og íslenskukennslu í stað þess að öskra eins og "við hleypum þeim inni landið og þau haga sér bara eins og glæpamenn"

Þið eruð helvítis glæpamennir með að loka á alla aðlögun hérlendis............


mbl.is Blóðug árás í Þorlákshöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Má ekki blogga um þenna dóm??????

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/09/12/4_ar_fyrir_kynferdisbrot/

 

Afhverju er lokað fyrir þessa frétt....

Hvursvegna spyr ég er maðurinn dæmdur í "heil" fjögur ár....

Og afhverju er þetta í gangi núna að taka af blogg möguleikann....

Hvað er í gangi í mbl dæminu núna.....


Mín byssa er stærri en þín....

Nei kome on.... Keyptu bara jeppa eða risa bát eða snekkju eða hafðu samband við lýtalækni....

Ekki sanna minni manndóm með að bregðast við með minni manndóm....

Þeir hefðu getað farið í reðurmann.... Sá harðari sem beygir hinn vinnur....

Vippa upp byssum og félögum er bara ekki að virka....

 

jokepenis.jpg


mbl.is Stærðin skipti greinilega máli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú spyr ég eins og fáfræðingur????

Eru einhvurjar líkur á því að téð drápshveli geti skutlað sér inn í þennann poll.... Ekki hef ég gerst svo frægur að berja hann augum þanning að ég veit ekki meir....

En það væri þá saga til næsta bæjar ef drápshvelin skyldu nú gúffa í sig þessum andanefjum bara þarna fyrir framan alla með öllum þeim subbulegum látum sem eiga að fylgja því áti.

Hmmm.....


mbl.is Andanefjum fjölgar á Pollinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Taka þetta til fyrirmyndar hérlendis.

Og afhvurju spyr ég... Hmmm... Það er nú betra að skrásetja og fylgjast með þessum mönnum á þennann hátt heldur en að varpa bara ábyrgðinni yfir á einhvern annann eins og í máli 'Agust Magnússonar sem virðist vera að fá að fara í bíbluskóla í Svíþjóð...

Hverning væri að taka þetta kerfi upp hérlendis og setja allann pakkann saman í einn allsherjar gagnabanka til að fylgjast með og vernda börnin okkar frá því að lenda í þesskonar aðstæðum....

Þetta er gert við eiturlyfjasala og aðra glæpamenn en virðist vera að bregðast með þessa menn.


mbl.is Barnaníðingar á skrá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einkar undarlegt.

Ekki er krafist neins af þeim er verið að sleppa úr gæsluvarðhaldi....

Er þé ekki hætta á að þeir einning flýi landið og verði semsagt ekki dregnir til ábyrgðar...

Furðulegt hvað löggæslan er fljót til að hleypa glæpamönnum úr landi...


mbl.is Eftirlýstur maður talinn hafa farið úr landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki annað en gleði og bros.

Þetta videó hér sýnir glögglega ástæðu þess að allir ættu að fá sér litla kisu. Jebb jebb það er fátt betra en að fylgjast með kettling fatta heiminn. Bara það að þegar þessi grey komast upp úr kassanum í fyrsta skipti og sjá skuggann sinn og byrja að þjóta aftur á bak út af ótta við það skuggaskrímsl er óborganleg skemmtun.

Svo þegar þessi grey leggjast hjá manni þegar maður situr með swiss miss í hönd að glápa á heiladrepandi sjónvarpsefni, þá er ekki nokkur leið að standa upp því maður vill nátturlega ekki ónáða þessar elskur.

En jæja hér er smá videó til að brosa að.

 


Verðum við öll öfug þarna hinum megin.....

Jebb það er nú risa-spurning dagsins... Sjáið nú til, ég var nefnilega að snúa uppá vænisýkina hjá mér með því að fletta fram og aftur um endalok og eyðingu jarðar.

Hvortsvosem það verður útaf óson, vísindum, kjarnorku eða þá þetta nýjast svarthols dómsdagsmaskínu ævintýri sem er í gangi núna.

Og þar rakst ég á þetta litla myndmand sem róar nú ekki gereyðingarhvatir manns.

 



En það er málið. Við eigum öll eftir að sjúgast og snúast inn í þetta svokallaða endalok alheimssvarthol. En hvar komum við þá út?

Og verður það hverning?

Úúúúúúú ef við erum heppin þá verður það alger ansnúa þessa heims.

Hmmmm ef maður setur það upp þanning þá hljómar það alls ekki illa.

En jæja, það verður nú einhvern bið eftir svörum í þessu eins og öðru.

En það fyndna er að það eru alvöru ógnvænlegir hlutir sem eru þarna úti sem gætu eytt jörðinni á mun verri hátt og mun meiri líkur á að það ske...

Til dæmis...hmmmmm....Georg bush, Flest öll þessi kjarnoddasprengju safnandi lönd með hreinræktuðum mikilmennsku brjálæðingum og svo minnist maður ekki á allar þessa aragrúa af veirum og sjúkdómum sem bara bíða eftir að veðrið verði rétt til að þeir geti farið af stað.

En við höfum nú staðið það af okkur og komist í gegnum það og einnig er fyndið að allir þessir titrandi trúarhopparar með ógnarfréttirnar sem eru búnir að berja á manni boðskapinn um að glóandi napalm húðaður fingur almættinsins væri handan hornins tilbúinn að strjúka okkur af planinu eins og ekkert sé.... Og þá kemur bara allt í einu í ljós að nei, enginn fingur eða gólandi morðóðir herir himins... bara hópur af forvitnum vísandamönnum sjá um eyðilegginguna....

Hlýtur að vera svekk fyrir suma.

 


i elskulegru minningu....


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband