Færsluflokkur: Bloggar
25.11.2008 | 12:13
Þetta er allsstaðar.
![]() |
Krafa um að viðtali við Geir verði skilað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
24.11.2008 | 23:14
Er bara þetta eftir.
Við þurfum greinilega að alfarið hætta að borga af húsum og eignum jafnvel leigu. Afskrifum allar opinberar skuldir og skatta og tökum upp sjálfsþurftarbúskap.
Ég mála hjá þér og þú býður mér í mat og svo framvegis.
Sveltum þessa ríkisstjórn í burt.
Það er ekki margt annað hægt að gera í stöðu með rassana á þeim límda þarna inni.
Við þurftum ekki á svona að halda í gamla daga meðan landið var byggt upp.
Og hvað eiga þeir að gera. Hvað eiga þeir að taka af okkur sem er ekki búið að taka....
![]() |
Láti sig hverfa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.11.2008 | 22:04
Ef þeir vilja okkur ekki inn a þing.
Til ad fylgjast með umræðu og framferði þá hringjið og sendið þeim póst þartil þeir svara eða fara.
Hér eru öll þeirra númer og póstföng.
Þau munu svara. Svo munu þau FARA.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.11.2008 | 21:48
Þeir eiga að fara ekki við.
Skila inn sínum lyklum og auðmannanna og við flytjum inn þangað og þeir geta farið út.
Við eigum ekki að tala um að yfirgefa okkar ástkæru fósturmold.
Við eigum bara að taka til og fleygja ruslinu útá hafsauga.
![]() |
Þetta er þjóðin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.11.2008 | 21:31
Geir vill VINNUFRIÐ....
Er neyðarköll okkar bara að trufla manninn....
Hvað er að gerast. Hann segir lika að hann telji ekki gott að ganga til kosninga.
OG HVAÐ MEÐ ÞAÐ. VILJI OKKAR ER ALLT ANNAR. VIÐ VILJUM KOSNINGAR OG YKKUR BURT ÁÐUR EN ÞIÐ DREPIÐ OKKUR OG LANDIÐ.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.11.2008 | 20:47
Ótrúlega gott að heyra þessar raddir.
Ég sit hér með borgarfundinn í gangi og fæ varla annað en tár í augun.
Loks heyrast einhverjar raddir sem vit er í að hlusta á.
Ég hlusta en hlusta ráðherrar og stjórnmálamenn sem sitja fundinn.
Þeir mættu þó en hvort þeir upplifi sömu von um að eitthvað breytist til hins betra er óráðin gáta.
Látið raddir okkar allra hljóma og við náum okkar fram.
![]() |
Húsfyllir í Háskólabíói |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.11.2008 | 20:31
Ekki á minu heimili.
Og eigum við þá bara að lúffa útaf þessum ótraustverðuga lýð sem heldur svo fast í stólana sína af ótta við að upp komist svik þeirra og prettir.
NEI EKKI Á MINU HEIMILI.
Ballið er að byrja og ríkisstjórninni er ekki boðið.
Burt meðan friður ríkir......
![]() |
Vantrauststillaga felld |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
24.11.2008 | 19:59
Þörf að rannsaka lögreglu og aðfarir fólksins.
Fáum uppá borð upptökur frá 112 og allt tengt skipunum Stefáns lögreglustjóra.
Kastljós viðtal við hann segir manni meira og meira að eitthvað er gruggugt við aðfarir lögreglu á fólkið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.11.2008 | 12:53
Vika í valdarán.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
24.11.2008 | 12:45
Ef listinn virkar ekki.
Þá er Siggi minn Pönk með þessa tillögu sem ég vill benda sterklega á.
Tekið úr Lífsmörk 1.tbl.
Ólíkt við mörg önnur evrópulönd er það hefð á Íslandi að kaupa frekar en leigja íbúðarhúsnæði. Þar sem landsmenn eru almennt ekki milljónamæringar þýðir þetta staðlaða skuldsetningu heimilanna. Með verðtryggingu og uppgreiðslukostnaði er síðan heimilum landsmanna haldið í ánauð því engin leið er að ná að borga upp.
Á nokkrum áratugum (og sérstaklega með frelsun bankanna) er búið að gera skuldasöfnun einstaklinga og heimila að normi.
Örfáar bankastofnanir eru áskrifendur að launum almennings. Þar sem ríkisstjórnin, stjórn seðlabankans og nýlega ríkisvæddir bankar landsins hafa fullan hug á því að herða sig við að kreista skuldara er viðbúið að fjölskyldur fari að missa heimili sín. Þó að oft sé sagt að langt sé á milli íslendinga er Ísland alltof lítið til þess að nokkur maður geti horft upp á það eiga sér stað. Almenningur mun stofna hópa sem standa saman um að verja heimili hvors annars.
Engin fjölskylda eða einstaklingur verður borinn út sé einbeittur samstöðuhópur til staðar sem varnar fulltrúum auðvaldsins vegar.
Þetta er kall eftir fólki sem hefur tíma, orku og getu til að skipuleggja sig fyrir aðra á þennan hátt. Það sem þarf að gera er að safna saman nöfnum og símanúmerum og setja upp símatré fyrir útköll. Hafa þarf (helst fleiri en eitt) neyðarnúmer og gera það aðgengilegt fyrir fólk sem hefur fengið hótanir um að vera borið út.
Það þarf enga leiðtogahæfileika til þess að skipuleggja sig á þennan hátt. Það þarf einungis að hugsa með hjartanu. Það er sama hvort og hversu mikla óráðsíu fólk hefur gert sig seka um í ímyndaðri veislu góðærisins.
Það þurfa allir á samstöðu að halda og allir eiga hana inni þegar sótt verður að heimilinu.
Heimili er skjól fyrir veðri, vindum og ati samfélagsins, er ekki fríðindi, lúxus eða áunnin réttindi, heldur órjúfanlegur partur af mannlegri tilvist á þeirri eyju sem við byggjum.
Okkar samfélag snýst um gagnkvæma virðingu og gagnkvæma aðstoð en ekki samkeppni. - - - - - - -
- - Þessi grein er fangin úr tímaritinu Lífsmörkum, 1. tbl, sem Sigurður Harðarson gefur úr.
![]() |
Hvetja til aðgerða vegna vanda heimilanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)