Færsluflokkur: Bloggar

ÞJÓÐFUNDUR ÍSLENDINGA

ÞJÓÐFUNDUR ÍSLENDINGA

- 1. desember 2008 - Arnarhóli -

oft er þörf en nú er nauðsyn á samstöðu.

Borgarahreyfing um Þjóðfund 1. des. eru regnhlífarsamtök þeirra hópa og einstaklinga sem hafa haft sig í frammi opinberlega undanfarnar vikur vegna þess gjörningaveðurs sem fjármálamenn, stjórnvöld og embættismenn hafa kallað yfir þjóðina.

Borgarahreyfingin stendur algerlega utan við alla stjórnmálaflokka og telur að núverandi stjórnvöld sem og stjórnarandstaða hafi glatað trausti landsmanna.

Borgarahreyfingin hvetur alla landsmenn til að sýna samstöðu og krefjast breytinga á stjórn landsmála og breytinga á stjórnsýslu með því að leggja niður vinnu og mæta á Jafnframt hvetur Borgarahreyfingin til þess að öll samtök launþega veki athygli félagsmanna sinna á fundinum og að Samtök atvinnulífsins sýni vilja sinn til þjóðarsáttar og hvetji aðildarfélög sín til að gefa starfsfólki leyfi frá störfum.

Frummælendur í stafrófsröð:

Einar Már Guðmundsson, rithöfundur

Lárus Páll Birgisson, sjúkraliði

Margrét Pétursdóttir, verkakona

Snærós Sindradóttir, nemi

Þorvaldur Gylfason, hagfræðingur

Blaz Roca (Erpur) rappar um þjóðmál

Fundarstjóri: Edward Huijbens, landfræðingur


Ef allt fer á þennan vegin verið þá viðbúinn.

Táragas og piparúði eru ólík efni en eiga það sameiginlegt að vera notuð til að sundra hópum mótmælenda. Yfirlýstur tilgangur er sá að stöðva hamslaust ofbeldi og skemmdarverk en þessi efni eru þó oft notuð án þess að nokkur ástæða sé til að ætla að fólk sé í hættu.

Það er hægt að bregðast við þessum efnum og engin ástæða til að láta þau stöðva okkur í aðgerðum.

Viðbrögð við piparúða -

Piparúði er miklu hættulegra efni en táragas og einmitt það efni sem líklegast er að íslenska lögreglan noti til að verja þá valdníðinga sem viðhafa slímsetur í stólum embættismanna og ráðherra um þessar mundir.

Mace er allt annað efni en piparúði og mun skyldara táragasi. Ef þú færð gusu af vökva á þig, þá er það ekki mace heldur piparúði. -

Ólíkt táragasi er auðvelt að beina piparúða að ákveðnum einstaklingum. Því er nauðsynlegt að þeir sem telja sig líkleg skotmörk þar sem búast má við lögregluofbeldi, hylji andlit sín, bæði til að draga úr líkunum á að þeir þekkist en ekki síður til að hindra efnið í að komast í snertingu við viðkvæmt hörund.

Sundgleraugu koma einnig í góðar þarfir. -Áhrifin af piparúða eru hroðalegur sársauki. Þér finnst eins og sé kviknað í þér og þau áhrif vara miklu lengur en áhrifin af táragasi. Vatn gerir takmarkað gagn en er þó skárra en ekkert.

Betra er að kæla svæðið með mjólk. -

Reynið í lengstu lög að komast hjá því að snerta þau svæði sem hafa orðið fyrir úðanum.

Þegar sársaukinn er óbærilegur er það varla í mannlegu valdi en snerting gerir bara illt verra. Hindrið aðra sem hafa fengið úðann á sig í því að nudda húðina eða augun.

-Ef efnið fer í augu, dragið þá ekki að leita til læknis. Þú getur ekki skolað þetta burt með vatni í heimahúsi.

-Ef þú færð efni upp í þig eða á varir, máttu alls ekki kyngja. Skyrptu eins og þú getur og skolaðu munninn. Ef þér verður á að kyngja efninu, leitaðu á slysadeild strax.

-Haltu ró þinni. Efnið veldur ekki varanlegum skaða nema þú hafir ofnæmi fyrir því en sársaukinn er svo mikill að sá sem fyrir verður er líklegur til að halda að hann verði blindur og fái brunasár. Það er nauðsynlegt að segja þeim sem verða fyrir úðanum strax að hann sé skaðlaus.

Jafnvel þótt fólk eigi að viti það getur það sannfærst um að það sé vitleysa og það er mjög mikilvægt að mæta þjáðu fólki með rósemd. -Efnið sest í hár, á allan fatnað og aðra hluti.

Varist því að snerta augu, munn, andlit, kynfæri eða önnur viðkvæm svæði nema þvo hendur mjög vandlega og oft ef þið hafið verið í aðstæðum þar sem piparúða er beitt, jafnvel þótt þú teljir þig hafa sloppið alveg.

Húðin á fingurgómum og lófum er ekki nærri eins næm og mýkra hörund eða slímhúð. Viðbrögð við táragasi Þegar táragasi er kastað eða því skotið inn í hóp fólks myndast hræðsla og ringulreið. Gasið ertir augu og húð, byrgir sýn og hefur kvíðavekjandi lykt.

Það versta er þó áhrif þess á taugaboð til heilans. Þú sannfærist um að þú getir ekki andað, hreinlega gleymir hvernig maður ber sig að en mundu að þú getur það samt.

Nokkur mikilvæg atriði:

• Vertu með vindáttina á hreinu. Gasið berst með vindinum svo það má forðast með því að standa undan vindi. Ef vindurinn er nógu sterkur getur maður gengið að hylkinu sem gasið vellur útum undan vindi og sparkað því aftur til föðurhúsanna. Gættu þess þó að hylkið er mjög heitt og því má alls ekki snerta það með berum höndum. Bentu öðrum á vindáttina ef vera skyldi að gasi verði beitt.

• Haltu ró þinni. Ef þú æsist hugsar þú ekki rökrétt. Fólk hefur hlaupið inn í gasmökk í óðagoti. Reyndu að meta aðstæður og taka rökréttar ákvarðanir. Forðastu gasið en ekki láta það stökkva þér á flótta.

• Mundu að þú getur andað. Ef þú verður fyrir gasinu skalltu hugsa “ég get andað”, hugarfarið gerir það auðveldara. Komdu þér frá gasinu og reyndu að anda rólega. Öndunin mun rifjast upp. • Hyldu andlitið. Gasgrímur eru besta vörnin. Klunnalegar her- eða slökkviliðsgrímur gera þig ónæma/n fyrir gasinu en handhægari eru grímur eins og málarar og iðnaðarmenn nota.

Einnig má hnýta dulu fyrir vitin. Hún hjálpar svolítið ein og sér, en margfalt betra er að bleyta hana með sítrónusafa. Ef þú notar þessa aðferð skalltu annað hvort gegnbleyta duluna heima og hafa hana í lokuðum nestispoka þangað til gasinu er kastað, eða þá vera með safann á þér og sulla honum yfir hana þegar þú þarft að nota hana.

• Þefaðu af einhverju lyktsterku. Ef þú verður fyrir gasi minnir lykt þig á að þú getur andað. Sítrónusafi, spritt eða ilmvatn eru kjörin. Þó er laukur besta lækningin af þeim öllum. Gott er að skera lauk í nokkra bita og útbíta honum til folks í kringum sig þegar gasið fer að vella.

• Ekki snerta á þér andlitið. Það ertir húð og augu bara enn frekar. Gasið sest á allt, þ.m.t. hendur. Láttu tárin um að hreinsa augun og hinkraðu smá stund eftir að kláðinn í húðinni hætti. Þú þolir þetta alveg.

• Hjálpaðu öðrum. Ef þú ferð eftir öllu hér að ofan verður allt í lagi með þig. Þá er næsta skref að hjálpa öðrum. Í stéttabaráttu verðum við að passa upp á hvort annað.

Við höldum hópinn og komum þeim sem örvænta út úr mekkinum, róum þau niður, hjálpum þeim að anda aftur, gefum þeim vatn og komum þeim burtu ef þau treysta sér ekki til að vera lengur.

Ábyrgðamenn barna verða að meta vindáttina frá upphafi mótmæla og vera tilbúnir að koma þeim undan STRAX og gasinu er kastað.


Allir verða að vera með myndavélar.

Það hefur nátturulega verið staðreynd að Greiningadeild löggunar hefur verið á ferli í og kringum mótmælin.

Síðasta laugardag var einn hress "dulbúinn" sem dósakall á einum bekknum en stakk af um leið og við pressuðum að honum og reyndum ad ná af honum myndum.

En eins og alltaf þegar maður reynir að fletta hulunni ofan af augum þeirra sem neita að svona sé í gangi þá er maður kallaður vænisjúkur anarkisti.

OG JÁ ÞAÐ ER ÉG.

Og þessvegna tek ég og minir eftir þessu.

Lesson of the sixties... All the parnoids were right.

Og núna var ég einmitt að lesa úttekt við Stefán löggustjóra þarsem hann er spurður úti þetta.

 

DV hafði samband við Stefán Eiríksson lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu varðandi málið;

Blaðamaður; Hvað getur þú sagt mér um óeinkennisklædda lögreglumenn á mótmælum?

Stefán; Ég get nú bara lítið sagt þér um það

Blaðamaður; Þú getur lítið sagt mér um það. Nú erum við með staðfest dæmi um tvo allavega Stefán; Já Blaðamaður; Hvað eru þeir margir?

Stefán; Ég get ekki gefið þér upp viðbúnað okkar í tengslum við þetta Blaðamaður; Getur þú ekki sagt mér hvað þeir eru margir?

Stefán; Nei eins og ég segi ég get ekki gefið þér upp vibúnað okkar í tengslum við þessa fundi en hlutverk okkar er skýrt, hlutverk okkar er að sjá til þess að mótmælendur geti komið sjónarmiðum sínum á mótmælum á framfæri.

Blaðamaður; Er eðlilegt að það séu óeinkennisklæddir mótmælendur á svæðinu?

Stefán; Það fer eftir aðstæðum hverju sinni, hvað er eðlilegt, við metum það bara á hverjum tíma en við gefum það ekki upp, hvort eða þá hverjir eru á ferðinni.

Blaðamaður; En þú getur staðfest að þeir séu þarna? Stefán; Nei ég get ekki staðfest það. Þú skilur ekki svör mín ef þú heyrir það ekki. Ég get ekki sagt þér frá því í hverju okkar viðbúnaður felst. Okkar hlutverk er skýrt. Og ég bið þig um að hlusta á það. Það er að sjá til þess að mótmælendur komi sýnum sjónarmiðum og viðhorfum á framfæri, það er meginverkefni okkar í tengslum við þessi mótmæli.

Blaðamaður; Eins og ég segi þá hef ég staðfest dæmi um tvo, alveg bara konkret. Og ég veit alveg til þess og ég veit líka að sumir eru með myndavélar. Og ég er að spurja, hvernig kemur það að þessu hlutverki ykkar sem er að sjá til þess að mótmælendur geti komið sjónarmiðum sínum á framfæri?

Stefán; Eins og ég segi. Ef að þú hefur einhver staðfest dæmi þá bara flytur þú fréttir um það og færir þín rök fyrir því en ég get ekki tjáð mig um það og mun ekki tjá mig um það. Hvernig okkar viðbúnaður er og hvort að við séum með svona viðbúnað eða ekki. Blaðamaður; En þú telur það alveg réttlætanlegt að beita slíku?

Stefán; Eins og ég segi ég er ekki að tjá mig um þetta. Þannig að við erum ekkert að ræða Þetta á þessum nótum.

Blaðamaður; En ef ég spyr bara og þú þarft ekki að segja mér hvort þetta sé í gangi, ég er bara að spurja, þú telur það samt eðlilegt undir ákveðnum kringumstæðum.

Stefán; Bíddu ég er búinn að svara sppurningunni, þarf ég að svara henni oft?

Blaðamaður; Ég er bara að spurja þig þessarar einföldu spurningar Stefán; Já ég er að svara þér með alveg jafn einföldum hætti, að ég gef þér ekki upp upplýsingar um okkar viðbúnað og segi ekkert til um það hvort að hann sé með einhverjum hætti eða einhverjum öðrum hætti.

Blaðamaður; En þetta var bara einföld spurning sem að ég spurði, hvort að þú teldir þetta vera eðlilegt.

Stefán; Já og einfalt svar, ég tjái mig ekki um það.

Blaðamaður; Hvort að það er eðlilegt eða ekki?

Stefán; Ég get ekki rætt þessi mál, eðli málsins samkvæmt.

Blaðamaður; Heyrðu þakka þér fyrir.

Stefán; Þakka þér fyrir sömuleiðis.

 

'uúúú´ffff við verðum að fylgjast með hvort öðru. Ætli þeir reyni að pikka út alla þá "grímuklæddu" og koma þeim frá til að allt fara ekki af stað.

Eru þeir ekki að fatta að flestir eru búinr að fá nóg og venjulegt fólk er til í slaginn að koma þessum völdum frá, rikisstjórn og seðlabanka bákninu.

Fyljgist með og ef eitthvað fer af stað náið myndum af öllu.

Við viljum ekki lygarnar sem fylgdu löggustöðinni aftur.

Þeir geta ekki búið til blekkingar því fleiri sem við erum og ef við vopnumst með mynda og tökuvélum þá er ekki séns að breyta sannleikanum.

Svo getið þið lika athugað hvort þið fáið að taka myndir af tveim st´0rum hvítum rútum sem hefur verið lagt undanfarið bakatil við Alþingiðhúsið og bakvið gamla pósthusið.

Þær fara ekkert framhjá neinum sem er með opin augun. Gluggatjöld fyrir öllum gluggum og fjórir menn við hvora hurð og þeir gera ekkert annað en að lita yfir öxlina hehehehe.

En eigum við ekki rétt á að vit hvort löggan sé með vopnaða menn á bið að hreinsa okkur burt ef ÞEIM finnst mótmælin fara i graut.

Og hver eru viðmið þeirra á því.

Kannski gefa þeir út svona bækling hverning þeir ætli að leyfa okkur að vera "frjálsir" mótmælendur.

Helv. rugl er þetta alltaf þegar yfirvöld neita svörum almennings sem þeir eiga að vernda.

Vernda já ekki passa uppá............


Bylting í aðsigi

Frá Dv.

Innlent 14:48 Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn segir í viðtali sem hefur verið birt á Youtube að lögreglan hafi upplýsingar um það að hópur fólks vilji koma stjórninni frá með öllum ráðum.

„Spennan er svo mikil hérna að lítill neisti gæti komið af stað sprengingu á meðala mótmælenda.“

 

Erum við almenningur að fara að komast á spjöld sögunnar????

Þýðir þetta aukinn viðbúnað. Gas kylfur varalið.


Ísland Er land MITT

Ekki eign valdasjúkra peninga dýrkandi lítilli klíku.

Ekki eign rikistjórnarinna sem á að ÞJ'ONA okkur en gerir ekki.

Helgin er að nálgast og friðurinn er úti. 

Spurning í hvaða opinberum byggingum þeir feli sig í.

Spurning hvaða óvæntu uppákomu Björn Bjarna sé með í spilunum.

En það er ekki spurning hvað við gerum.

Við verjumst þessum stjórnvöldum og kennum þeim lexiu að ekki skal stíga á almenning og reyna að svo að sparka i liggjandi þjóð.

Nú stöndum við upp og tökum til hendinni.

17072_orange_man_wearing_a_tie_using_a_mop_while_mopping_a_hard_floor_to_clean_up_a_mess_or_spill.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skrúbbum hyskið burt.

Sýnum heiminum að svona valdníðsla verður ekki liðin.


og hvað er svo slæmt við

að tveir samkynhneigðir menn eða konur ali upp börn

Sýndu mér rök..........

 


mbl.is Dómari brýtur lög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrigefðu Rikisstjórn.

Ææææiii fyrirgefðu aðég mótmæli að og aðrið skuli dirfast að gjamma á móti ykkur.

'Eg bið forláts á því að hafa áhyggjur af mat yfir mánuðinn eða eiga húsaskjól.

Ég skal skammast min fyrir að láta ykkur líða illa yfir að hafa laun sem ég mun aldrei hafa.

Og ég skal bara borða lítilfjörlegan jólamatinn minn á hjálparstofun um jólin og ég skal lofa að öfunda ykkur ekki yfir að borð ykkar flæði með mat og drykk sem voru keyptir fyrir peninga sem þið RÆNDUÐ af okkur.

En ég mun ekki biðjast afsökunnur fyrir neitt.......

Þið eruð að taka allt af mér og minum og haldið þið að fyrst þið eruð búin að koma okkur úti i horn með ykkar aðgerðum að ég geri ekkert..........

Veistu...... Ég veiði ekki rjúpur í matinn um jólin......

ÉG VEIÐI YKKUR.


Smá "samsærisvideó"

Og her er sma linkur frá konu sem heitir Inga Hrefna Sveinbjarnardóttir.

Upplýsingar.


Í framhaldi af mynbandi Geirs H.

Hér er t.d gott blogg um aðfarir manna að fjölmiðlum.

Helga Vala segir frá sinum samskiptum.

Ritskoðun.


Svona er þetta bara.

att1438617.jpg

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband