Færsluflokkur: Bloggar
1.12.2008 | 08:34
Sár sannleikur.
Tekið af eyjan
Eignaupptaka
Í Kastljósi verið að ræða húsnæðismálin, hvað væri búið að gera og hvað þyrfti að gera.
EINA umræðan er um afborganir.
Afhverju talar ENGIN í alvöru um eignaupptökuna, sem felst í þessu öllu??? Árið 2005 keypti ég íbúð á 22 milljónir.
Sjálf átti ég 10 milljónir eftir að hafa nurlað í 30 ár! Ég fékk 12 millj. lán í SPRON með föstum 4,15% vöxtum. Íbúðaverðið hækkaði svo í 25 mill en þar sem ég ætlaði mér að vera hér þar til börnin væru farin að heiman - eftir 5-7 ár eða svo græddi ég ekkert á því.
Þá hafði ég hugsað mér að minnka við mig og kannski í fyrsta skipti í lífinu að eiga afgang af launum en ég er 55 ára. Afborganir voru í byrjun 51 þúsund á mánuði og allt virðist í lagi þó verðbólguspá Seðlabankans sem ALLTAF var í kring um 2-4% stæðist nú ekki alveg.
Nú, 3 og hálfu ári seinna er staðan þannig: Lánið er komið í 15,2 og íbúðarverðið er komið niður í 18-19mill.
Ég er að reyna að selja en gengur ekki enda selst ekkert. Búið er að segja mér upp í bankanum og ég fer á atvinnuleysisbætur eftir 2 mánuði.
Mér er sagt að á NÆSTU 12 mánuðum eða svo muni lánið mitt fara í minnst 18 milljónir, jafnvel enn hærra og verð íbúðarinnar sennilega niður í 16 - 17!!
Eign mín, 10 milljónir, sem eru hreint engi smáaurar fyrir konu sem hefur unnið úti allan daginn og komið 3 börnum í gegnum háskóla og til manns - er horfin!!! bara horfin og engin lætur sér þetta koma við!!!
Mér er líka sagt að ég geti bara búið hér áfram, greitt háar afborganir sem ég þarf væntanlega að finna mér 2 störf til að hafa fyrir, verði ég svo HEPPIN að fá 1 starf - hvað þá 2.
Þó ég þræli í þessu starfi eða störfum þar til ég drepst mun ég aldrei gera meir en skrimta og höfuðstóllinn mun halda áfram að hækka.
Eignin muni svo smátt og smátt hækka í verði aftur, er mér sagt, en æææ , þá hækkar líka verðbólgan og þar með lánið mitt ennþá meir!!!!!
Sem sagt - innan árs er ég eignalaus og telst heppin ef ég hef getað haldið í við afborganir. Taki bankinn yfir íbúðina má guð vita hvort ég komi út á sléttu eða jafnvel skulda ennþá.
Þá þarf ég að gera mig gjaldþrota. Þarna er ég, sem safnaði, keypti mjög skynsamlega, bara svipt aleigu minni og ævisparnaði og allir eru að röfla um afborganir eða lengingu lána!!!!
Nota bene - lengi ég lánið í 70 ár - verður búið að greiða fyrir þessar 12milljónir sem teknar voru að láni, á vormánuðum 2005, kr. 1.354.824.000 Já- segi og skrifa - einn milljarð þrjúhundruð fimmtíuog fjórarmilljónir átthundruð tuttugu og fjögur þúsund, miðað við 4,15% vexti og sömu verðhækkun og hefur verið á síðustu 40 mánuðum, þe., 26%.
Þarna er ekki verðbólguskotið sem er væntanlegt, tekið með. Sennilega munum við sem svona erum stödd, bara ganga út eins og gert er í Ameríku.
Þegar staðan er orðin þannig að stærsti hluti launanna fer í lánin eða leiguna eins og það mun heita þá - þá göngum við bara út - hættum að borga.
Þá leggst allt endanlega á hliðina segja hagfræðingar ef fólk hættir að borga. Þetta mun byrja að gerast seint á næsta ári sennilega eða snemma á 2010. Hvað gerist þá????
það ætla ég ekki að lifa af skal ég segja ykkur.
Íslensk náttúra mun tilheyra mér sama hvaða banki fer á hausinn og í hana mun ég leggjast einhverja nógu kalda nótt, þakka fyrir mig og óska ykkur hinum blessunar.
Haldið að fólk sætti sig við þetta................
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.12.2008 | 07:23
Veganesti inn í daginn
Og hlátur dagsins i boði sleikju ársins.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.12.2008 | 07:04
Það bítur kuldinn.
En það fær okkur ekki stöðvað. Við mætum gallhörð og velklædd á Arnarhól kl 13 30 og sýnum hvað í okkur býr.
Það er nefnilega þanning að ef við ekki stöndum upp þá verður enn kaldara þegar húsaskjólið er farið upp í skuldir annara manna en þeirra sem eiga eignina.
Og ekki fáum við að vita hver stóð fyrir þeirri árás á okkur.
En við kreistum fram svör með því að standa saman og BERJAST á móti þessari aðför að okkur öllum.
Hlakka til að sjá sem flesta í dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
1.12.2008 | 01:04
Kannski betra en egg...
Ekki að ég sé að stuðla að því.
En frekar fer í mig að enginn minnist á að manngreyið er á götunni eins og tugir annara sem hafa i engin hús að venda.
En rífst fólk yfir því....
'Eg mæli með að Alþingi hleypi nú smáfuglunum inn til sín að fá að nota postulínsguð stjórnmálamanna.
Eða skiptir máli rass á séra jón og götu Jón?????????
![]() |
Gekk örna sinna í runna á Austurvelli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.11.2008 | 23:24
Félagi vor ritaði hér einstakann pistill.
Ég vill benda ykkur öllum hvortsem þið eruð með eða á móti öllu þessu veseni hérlendis í dag og lítið inn til félaga vors Skorrdals.
Einkar góð og vel viðeigandi lestur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.11.2008 | 22:28
Morgundagurinn rís.
Standið saman stolt bak í bak.
Til Hamingju með daginn OKKAR allra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
30.11.2008 | 20:11
Geir H er ekki minn vinur.
Þetta vilja sumir.........
HVER BER ÁBYRGÐ. MÉR ER ALVEG SAMA HVER GERIR ÞAÐ EKKI ÉG VILL SVÖR.
HVARF ALLT BARA SJÁLFKRAFA.
HURFU MILJARÐAR BARA Í BRUNA EÐA HVAÐ ER I GANGI.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.11.2008 | 19:50
Til hamingju Ísland.....
Með að halda með þeim.
Að halda með þeim sem etja sér gegn fólki sem er einfaldlega að berjast fyrir rétti sínum og dirfist að reyna vernda sitt land.
Stefán laug.
Hann LAUG uppí opið geðið á þjóðinni og sem betur fer tóku þónokkuð margir efasemdamenn eftir því og sáu aðeins ofaní ormagryfjuna.
Við sem mætum á móti þessu öllu saman, rikisspillingu og bitlingavaldi örfárra stórglæpamanna sem eru að myrða heila þjóð erum skyndilega orðin að geðveikum ofsa hryðjaverkamenn.
Fólk veður áfram og virðist vera ósköp sátt með að beita þessari orku á móti fólki sem er að verja það og hyllir þá sem eru að drepa það.......
Mannskepnan er undarlega full af kvalalosta greinilega.
Á morgun rennur upp nýr dagur.
'A morgun mætir sístækkandi hópur sem mun ekki bakka fyrr en tekið verður til......
Ég mundi skammast mín ef ég mundi fela mig bakvið lyklaborðið og neita að taka þátt í því að vernda landið mitt og framtið komandi kynslóða.
![]() |
Stefán Eiríksson heiðraður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
30.11.2008 | 19:22
Ertu enn hinum megin.
Við erum ekkert að gera rangt.... Nema við gerum ekkert.... Við erum ekkert að tala um nokkra pönkara og krakka að rífa kjaft. Ef svo væri þá hefðu allir verið handteknir um leið á löggustöðunni. Við erum 'Islendingar sem viljum verja okkur og þá sem eru i kringum okkur.
Valdstjórnin getur ekkert bannað okkur eitt né neitt, né þýðir EKKERT fyrir þær gungur að sitja bakvið skjöld einhverra topp-pappakassa oh halda fyrir eyru og augu og halda að við FÖRUM bara.
Við erum hópur samsettur af mjörg mörgum litlum sjálfstæðum einstaklingum sem eru búnir að fá nóg.
Ertu ennþá einn af þeim sem halda að þetta verði allt i lagi.....
MÆTTU OG VERÐU LAND ÞITT OG SJÁLFSTÆÐI.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.11.2008 | 18:56
Verður kóngurinn rasskelltur.
Þá er afmæli Lýðveldi okkar 90 ára á morgun og við sameinuð göngum móts öllu því sem ógnar áframhaldandi velferð eyjunnar okkar.
Mér hlakkar til að sjá ykkur sem flest á morgun.
Sýnum nú hug okkar og afl og hreinsum til.
![]() |
Mótmælaganga niður Laugaveg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)