Ljós í myrkrinu - tilkynning um jákvæðan gjörning

Ljós í myrkrinu - tilkynning um jákvæðan gjörning

Farið verður í Nýja Kaupþing í Borgartúni kl. 10.30 föstudaginn 9. janúar og Finni Sveinbjörnssyni bankastjóra

veitt viðurkenningin "Ljósið í myrkrinu" fyrir að stíga skrefinu lengra en hinir bankarnir til móts við nýja tíma.

Þaðan verður svo gengið til Ríkisskattstjóra að Laugavegi 166 og kl. 11 verður Skúla Eggert Þórðarsyni

veitt sama viðurkenning fyrir góðan starfsanda og von um árangur í því mikla rannsóknarstarfi sem nú stendur yfir.

Hugmyndin með þessu er að vekja athygli á því sem vel er gert og láta viðkomandi vita að við fylgjumst með gangi mála.

Þeir sem vilja taka þátt á þessum jákvæða gjörningi eru velkomnir með eða án grímu.

Kveðja frá ónefndum aðgerðasinnum


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband