8.1.2009 | 15:20
Ljós í myrkrinu - tilkynning um jákvæðan gjörning
Farið verður í Nýja Kaupþing í Borgartúni kl. 10.30 föstudaginn 9. janúar og Finni Sveinbjörnssyni bankastjóra
veitt viðurkenningin "Ljósið í myrkrinu" fyrir að stíga skrefinu lengra en hinir bankarnir til móts við nýja tíma.
Þaðan verður svo gengið til Ríkisskattstjóra að Laugavegi 166 og kl. 11 verður Skúla Eggert Þórðarsyni
veitt sama viðurkenning fyrir góðan starfsanda og von um árangur í því mikla rannsóknarstarfi sem nú stendur yfir.
Hugmyndin með þessu er að vekja athygli á því sem vel er gert og láta viðkomandi vita að við fylgjumst með gangi mála.
Þeir sem vilja taka þátt á þessum jákvæða gjörningi eru velkomnir með eða án grímu.
Kveðja frá ónefndum aðgerðasinnum
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.