Löggan að slá í gegn. Helv. bananalýðveldi.

Segi ekki meir....

Copy paste af visi....

 

 

Lögreglumaður, sem ákærður hefur verið fyrir að hafa tekið ungan pilt kverkataki í verslun 10-11 í Grímsbæ í lok maí, neitar sök í málinu. Ákæra ríkissaksóknara á hendur honum var þingfest í dag. Málið vakti mikla athygli enda sáust myndir af atvikinu á myndbandavefnum YouTube. Þar sést lögreglumaðurinn ráðast á piltinn eftir að hafa beðið hann um að tæma vasa sína. Lögregluyfirvöld á höfuðborgarsvæðinu ákváðu í kjölfar þess að málið kom upp að lögreglumaðurinn skyldi ekki sinna störfum á meðan Ríkislögreglustjóri tæki ákvörðun um hvort vísa bæri manninum frá störfum á meðan á rannsókn ríkissaksóknara stæði. Maðurinn kom hins vegar aftur til starfa í sumar og er enn við störf að sögn Guðmundar Guðjónssonar hjá Ríkislögreglustjóra. Honum verður ekki vikið úr starfi að svo stöddu. Aðalmeðferð í málinu verður 10. október.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband