Herför gegn Skattaskrýmslinu...

Jumm svo er víst að dagurinn í dag mun fara í þessa skemmtilegu og einkar þægilegu herferð niður í skatt... Helv. eru að tvískatta eða margskatta staðskatta og prósentuskatta mann...

Og þetta er einmitt svona, allskyns kerfisorð og rangalar sem svona illaupplýstir drengir eins og skilja bara ekki upp né niður í... Síðasta herför endaði með að ég sagði bara mitt, svaka sperrtur og allt átti að vera í lagi en endaði með að þurfa borga, ekki bara einhvern dularfullan skatt heldur skattlögðu þeir líka herförina...

En andskotinn ég nenni ekki að pikka og pota um skattadraslið...

Ég var einmitt vakinn af einkasyninum áðan sem var hreinlega að visna upp af leiðindum, þarsem honum vantaði þessa bráðnauðsýnlegu athygli sem knýr ferfætlinga víst áfram.

Þanning að ég þurfti víst að skella mér fram úr og færa villibarninu fórnir... Og nú dugar ekkert wiskas rusl eftir að hann komst í beikonið og kjúklingabringuna mínar í gærkveldi..

En jæja, ég ætla að skella mér í hringabrynjuna og setja upp vondramannasvipinn minn og reyna að tjónka við þetta helv. bákn þarna niður frá. Ef ég verð ekki fleygt í skattamannasvartholið þá kem aftur seinna til að pota niður einhverju gangleysi, annars bara reynir maður að skrifa eitthvað á klósettpappír, Marqi de sade stæl og smygla því út....

taxmonster


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband