Götulist. Bara fyrir augað.

Jæja fyrst það er komin helgi þá er komin tími á smá götulist. Bara að reyna enn og aftur að sýna ykkur þarna úti að það er ekki bara krass og krot þarna úti, heldur leynist inn á milli listaverk. Það mætti alveg eins og skella upp einni og einni mynd. En ég hef þó tekið eftir nokkrum sem ég á eftir að festa mynd á. Eins og t.d á veggnum þarsem leikbúðin er á laugaveginum ská á móti þarsem 22 voru. Þar er einmitt ein alger snilldarmynd. En annars var ég bara að velta mér úr bælinu og ætla á röltið aðeins fram eftir degi.

banksy-5 Ísrael West Bank Veggurinn... Þessi skelfingar veggur er þó aðeins áhorfanlegri með þessu verki eftir Banksy.

 

 

 

 

 

degraw3 Og ekki væri dónalegt að vera svo heppinn að fá að búa í þessari höll... 'oþekktur listamaður...

 En ég mæli eindregið með því að hafa augun opin á röltinu. Þó svo þessar myndir sem ég set inn núna séu ekki frá eyjunni okkar þá eru nú þónokkur verulega góð verk hér heima.

Og ég smelli nú kannski nokkrum inn... Annars bara góðan  dag í dag. Wink

 

 

 degraw2

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Frábærar myndir :)...Búin að kvitta!.... Takk fyrir linkinn...ferlega fínn... og sendi Jóni Steinari símanúmerið mitt á email af því að ég er ekki með þitt:)

Þetta var sem sagt multi-kvitt :)

Heiða B. Heiðars, 24.11.2007 kl. 12:11

2 Smámynd: Bara Steini

Skessa... 'eg er einmitt búinn að reyna að senda meil, en það er bara eitthvað með þetta dæmi. Ég lenti í þessu með félaga Voran Skorrdal lika. En já frábært ég ætti að geta náð í Prakkann. Og með linkinn, þá er bara svo mikill snilld að lesa og hlusta á þennann strák því hann er með svo einstaklega góða og holla sýn á heiminn og fær mann sífellt til að brosa.

Skorrdal. Það er einmitt þetta með þennann vegg þarna sem ég er hreinlega yfirmig hrifinn af. Og það er einmitt það besta við veggjalist að þar getur maður sagt hvaðsem er og er oft mikil fræði á bakvið það sem er smellt upp í "fréttablöðum" götunnar... 

Bara Steini, 24.11.2007 kl. 12:17

3 Smámynd: Fríða Eyland

Glæsilegt veggjakrot, takk Steini  

Fríða Eyland, 26.11.2007 kl. 12:35

4 Smámynd: Bara Steini

Mig langar svo að búa í borg sem þykir vænt um listamennina sína og leyfir þeim að fá smá tilverurétt. Heldur þú ekki að borgin mundi ekki draga að sér fleiri ferðamenn ef þetta væri algengt um borgina.... Svona eins og kristíanina i Köben mínus básar hehehe. Endlaust mun ég berjast fyrir þessu....

Bara Steini, 26.11.2007 kl. 12:38

5 Smámynd: Bara Steini

Og takk fyrir innlitið Fríða

Bara Steini, 26.11.2007 kl. 12:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband