Bara að pæla...

Þeir eru sífellt búnir að fljúga "óvart" inní í flest allar flugvarnarsvæði hingað og þangað um heiminn... Komnir með viðbragðstíma hjá þeim löndum, búnir að koma inn flugumönnum á jörðu og þetta er allt að fara afstað.

En eins og góður félagi minn minnist á við mig þá þurfum við nú engar áhyggjur að hafa af kjarnorku einu né neinu... alltof miklir hagsmunir í gangi til þess... En kjarnorkubomban er góð til að fela sig á bak við... En hver veit...


mbl.is Engin ógn stafaði af rússnesku herflugvélunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Talandi um dýraníð...

Hvað er í gangi...

Sjáið þetta. 


Rugl.

Já ónei... það eru 800 birnir eftir... Hvað eigum við að gera... Kálum bara slatta og byggjum hverfi og drasl... Það tekur enginn eftir því eftir smástund...
mbl.is Of margir birnir í Slóvakíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Helv...Enn og aftur HELV....

Allt í lagi... Lokum landinu á útlendinga... Bara skella í lás nema ef þú ert einn og áttíu með ljóst hár og há kinnbein... Hreinn flokkur fólks á lítilli eyju sem þorir ekki að vaxa úr grasi... Einn flottur innræktaður hópur sem neitar að taka mark á einu né neinu... Vill ekki tækniframkvæmdir eða þróunnaraðstoð afþví að helvítis útlendingar vita ekki neitt... Hvað ætli það tæki margar kynslóðir fyrir þetta þjóðfélag að eyðast út... Finnast grindhorað og afmyndað af innræktun einhvern tíma i framtiðinni...

NEI... Ég eins og svo margir aðrir virði og elska önnur menningafélög óháð hvaða litur er á þeim... Ef ég get lært og þroskast og upplifað nýja góða og slæma hluti þá mun mín hurð standa hverjum þeim sem vill kíkja í kaffi... Og helst þá að koma með kaffið sjálf frá heimalandinu svo ég geti nú aðeins aukið þekkingu á fleiri tegundum kaffis heldur Bragakaffi...


Samkynhneigð-Börn-Ofbeldi...

Ég var að lesa mér til um að Ísrael hafi nú leyft ættleiðingar hjá samkynhneigðum. Þetta fékk mig aðeins til að hugsa um eitt...

 

Ef ég og minn maður mundum nú ættleiða barn og það væri löglegt í því landi og við mundum nú skreppa í ferðalag til lands þarsem bannað er fyrir okkur að eiga börn og mundum nú lenda í slysi, hverning er þá tekið á því að tveir menn með ólöglegt barn séu liggjandi á sjúkrahúsi og barnið er þá réttindalega séð munaðarlaust og hefur maður þá engann rétt þar...

Og eins með ofbeldi... Það er að segja heimilisofbeldi... Ef maður má ekki búa í samþykktri búsetu það er að segja gifting, er þá ekki rétt að það er ekki heimilsofbeldi ef maður lemur kallinn sinn??? Er hærri dómur fyrir það eða minni... Gæti ég þá kært kallinn bara fyrir hatursglæp afþví að hann lemur mig og kallar hommatík.... Er það bara heimilsofbeldi ef maður slær konu...

Nei ég veit ekki... en veit þó að þurfa skrifa Löglegt samband eða bara það að bannað sé að eiga börn sé útaf því að maður eigi að vera samkynhneigður er alger hneisa...

Þetta er samt forvitnilegt hvort maður hafi sömu réttindi í sínu "löglega" landi eða þá hvort þau hverfi þegar maður heimsækir lönd þarsem maður er "ólöglegur" 


Drengjum er líka misnotað...

Mér hefur alltaf brunnið mikið hatur í garð kynferðisglæpamanna og þær manneskjur sem lenda í klóm þessara skepna eiga hug minn allann...

En einning fer soldið mikið fyrir brjóstið á mér er þegar drengir og ungir menn lenda í misnotkun og nauðgun þá er það einhvern veginn alltaf lágværari umræða og hálfpartinn farið í kringum málið... Margir þarna úti hafa lent í skelfilegum hlutum og hafa ekki hugmynd um hvert eða jafnvel hvort er hægt að leita hjálpar, bæði sökum þess að "gaurum er ekki nauðgað" hugarfarinu eða þá þessari skrýtnu þögn í kringum þetta allt saman...

Við verðu að vinna að þessum málum öllum og rétta öllum þeim sem lenda í þessari skelfilegu reynslu alla þá hjálp sem við getum og reynum að uppræta þennann óþverra útur okkar samfélagi...


Ands...Tvískinnungur...

Hvað er að ske með þennan helvitis einkarekna heim sem við eigum víst að búa í. Við megum ekki spila, reykja dansa eða nokkuð sem gæti kannski kveikt einhvern gleðigalsa i sálinni... Og nú má ekki einu glæpamannast smá gegn markaðsvæðingunni með þvi að ná sér í smá skemmtiefni... Hvað næst... Ef maður dirfist að örvast aðeins á kynferðissviðinu og dirfist að skella sér í 69 í stað trúboðans á maður þá von á ískaldri vatnsbunu frá siðferðis-auglýsinga-alheims eigendum sem virðast verða stjórna andskotanum öllu sem við eigum að fá að gera... Það má ekki hata neinn og það má heldur ekki elska neinn... Það má ekki faðma börnin sín og það má ekki segja brandara nema með áskildum smáborgara ritskoðun... Þetta er allt helvítis rusl og það gengur ekkert að neyða fólk inn í einn sótthreinsaðann gereyðingarklefa þar sem allir tala um einn hreinann sannleika sem einhver stýrinefnd setur upp... Hvað er að ske... >Svo gjamma allir um fordóma og frjálsan helvítis heim sem er stjórnað af ósynilegum hóp... ERU ÞAÐ EKKI FÖKKING FORDÓMAR...
mbl.is Refsað fyrir ólöglegt niðurhal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vísindakirkjan á Íslandi...

Það lítur út fyrir að það sé bara mætt í Breiðholtið... Hehehe.

Þá vantar bara Starbucks og þá er hægt að sturta skerinu niður...


Vænissjúkur Stóri bróðir.

Þetta hefur mér alltaf fundist undarlegt. Hvað er verið að planta sífellt myndavélum um allt. Og undir þessum undarlegu formerkjum. Ætli það yrði löglegt fyrir löggugreyin að fylgjast með jafnvel þeim sem þeir mega ekki nota á eftirfarabúnað á... Hver veit...

En ég veit þó að ég vill ekki búa í myndavélalandi... Eins og Bretland þarsem það er hérumbil tvær öryggisvélar á haus, en ástandið þar er nú ekki beint gómsætt...

Nei en ég mundi nú samt vilja fá að sjá upplýsingar um fjölda og staðsetningu öryggisvéla og einnig tilgang með þeim. Við hljótum þá að hafa rétt á að vita hvar og hver er með auga á okkur. 

banksywhatareyoulookingat En ég bjóst þó við að kikja hingað inn í dag og sjá ekkert nema niðurníddar bloggsíður sundurtættar eftir tannhjól markaðsvæðingarinnar... Nei þó ekki.Þessi auglýsingabuisness er nú samt óþolandi og vill ég fá þetta á brott... Og ekki segja mér að gera tool addon eitthvað eitthvað því ég á hvorki að þurfa þess né vilja


mbl.is Umferð sýnd í beinni?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smá pirr.

Jæja rétt áður en ég stekk afstað upp í Kópavog að vinna í veggmyndinni minni þá var ég að taka til í tölvunni minni og rakkst á eina pirraða færslu sem ég gleymdi að smella hérna inn. Langaði bara að henda þessu inn... Og bið að heilsa ykkur í bili esskurnar.

 Hehehe frábært, eins og vanalega samkvæmt fjölmiðlum og vefmiðlum var "óöld" við lýði í borg óttans um helgina. Fræðingar og fáfræðingar hlömmuðu sér niður á sunnudagskveld til að ræða þessa ofboðslegu víkingahelgi þar sem áfengi þvag og aðrir vessar flæddu um stræti miðborgarinnar.

Fréttir fleygðu upp myndum að ungum ofurölva einstaklingum að berjast sín á milli og einning að takast á við lögregluyfirvöld sem voru með sínar hendur fullar. Hahhaah.

En svo byrjaði snilldin, allir áðurnefndir einstaklingar sem nýbúinir voru að lýsa yfir að miðborgina ætti að forðast um helgar og enginn ætti að hætta sér þangað niður eftir. Samt er þetta fólk að segjast búa yfir lausninni á því hverning á að taka á ástandinu sem það veit nú ekkert um, nema af lestri uppblásinna frétta og úthverfabúa vænissýki sem alltaf mikla hluti upp úr öllu valdi.

Ok ok ég er ekki að segja að helgar í miðbænum sé öruggasti eða hreinlátasti staðurinn. Auðvitað er allt vitlaust þarna þegar fólk er matað á maniskum fréttum og umræðu um limlestingar og jafnvel manndráp alla vikuna. Svo þegar þetta fólk smellir sér út og einhver gerir þau mistök að hnippa lauslega í öxlina á þeim, þá er best að bregðast við geðsjúka miðborgardjammaranum með höggum og spörkum.

En er einhver lausn á þessu ástandi. Ég segi persónulega að það ætti að ætti að hætta að hefja þessa ofbeldisdýrkun á svona hátt stig og kannski að hafa það á bak við eyrað að Lögreglan mætti setja sig í sitt rétta hlutverk, það er að vernda einstaklinga og borgina en ekki æða um og haga sér eins og einhvursskonar fasista siðgæðisverðir.

Virða borgarbúa og borgarbúar virða til baka. Og kannski er líka kominn tími til að setja á opinber lyfjapróf á verði laganna þar sem við erum að borga launin þeirra og þeir eiga að vera okkar verðir og er þá ekki í lagi að fá að vita að þeir séu í lagi til að standa undir þeirri skyldu.

 

Og svona líður manni víst í dag hehehe eins og þessi sómamaður hér á mynd.

732


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband