Beikonherinn leitar á ólögráða unglingum.

Það virðist gleymast að kenna löggum..það er að segja þessari nýju kynslóð, almenn vinnubrögð og mannréttindi hér á skerinu... Svo virðist að sumir þarna fái prófið sitt í kornflekspökkum frekar en að vera útskrifaðir úr skóla...

Málið er skrýtið þegar 3 óeinkennisklæddir menn geta dregið 13 ára strák til hliðar á Laugavegi um hábjartann dag og einfaldlega tekið af honum skólatösku og leitað í henni...Undir þeim formerkjum að hann gæti verið "krotari"...

70. gr. [Öllum ber réttur til að fá úrlausn um réttindi sín og skyldur eða um ákæru á hendur sér um refsiverða háttsemi með réttlátri málsmeðferð innan hæfilegs tíma fyrir óháðum og óhlutdrægum dómstóli. Dómþing skal háð í heyranda hljóði nema dómari ákveði annað lögum samkvæmt til að gæta velsæmis, allsherjarreglu, öryggis ríkisins eða hagsmuna málsaðila. Hver sá sem er borinn sökum um refsiverða háttsemi skal talinn saklaus þar til sekt hans hefur verið sönnuð.]

Ef einhver mundi draga barnið mitt til hliðar og leita á honum mundi nú fjandinn vera laus segi ég ykkur eins og vonandi þið hin... En það er bara þanning að vinnubrögð löggunnar standast alltaf skoðun eins og Björn Bjarnason sagði um daginn...

Þýðir það að ekki er hægt að kæra eitt né neitt því þeir mega allt???

Ef götueftirlit stöðvar fólk á göngu og biður það um að tæma alla vasa og rétta fram síma eða jafnvel myndavélar og ætlast til þess, er það þá líka í lagi...

 71. gr. [Allir skulu njóta friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu. Ekki má gera líkamsrannsókn eða leit á manni, leit í húsakynnum hans eða munum, nema samkvæmt dómsúrskurði eða sérstakri lagaheimild. Það sama á við um rannsókn á skjölum og póstsendingum, símtölum og öðrum fjarskiptum, svo og hvers konar sambærilega skerðingu á einkalífi manns. Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. má með sérstakri lagaheimild takmarka á annan hátt friðhelgi einkalífs, heimilis eða fjölskyldu ef brýna nauðsyn ber til vegna réttinda annarra.]1)

Einning var hér einusinni sú regla að ekki skylda leita á fólki á almannafæri þó svo að rökstuddur grunur væri til staðar um refsivert athæfi, heldur skyldi færa til lögreglustöðvar eða þá herbergis þarsem leit færi fram... Alltaf margbrotið...

Er þetta semsagt það sem á að fara fram hérlendis áfram... Enginn má hreyfa sig eða taka þátt í mótmælum eða segja skoðun sína án þess að eiga á hættu að vera barinn niður af lögreglu...

 73. gr. [Allir eru frjálsir skoðana sinna og sannfæringar. Hver maður á rétt á að láta í ljós hugsanir sínar, en ábyrgjast verður hann þær fyrir dómi. Ritskoðun og aðrar sambærilegar tálmanir á tjáningarfrelsi má aldrei í lög leiða. Tjáningarfrelsi má aðeins setja skorður með lögum í þágu allsherjarreglu eða öryggis ríkisins, til verndar heilsu eða siðgæði manna eða vegna réttinda eða mannorðs annarra, enda teljist þær nauðsynlegar og samrýmist lýðræðishefðum.]1)

Og er það eðlilegt að ríkið fái að nota nema í skólanum í almenna löggæslu... Liðið er of ekki útskrifað þegar það´fer að vaða um Reykjavík að næturlagi...

Bara svona svo þið sem eruð ekki í 101 um helgar þá eru aðfarir löggunnar í mótmælunum þarna um daginn ekkert öðruvísi en þeir nota um helgar... Nema þá lenda ansi of ólögráða unglingar í klónum á þeim og fá ekkert með málið að segja og forráðamenn fá ekkert að heyra...

Ótrulegt þetta land........ 

Og svo vídeó dagsins...

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk fyrir að pósta myndbandinu, þetta þarf að fara út um allt!

Gunnar Hrafn Jónsson (IP-tala skráð) 28.4.2008 kl. 15:08

2 Smámynd: Bara Steini

Minnsta mál... Er búinn að pósta inn á myspace og þetta fer um allt skal ég segja þér

Bara Steini, 28.4.2008 kl. 15:16

3 Smámynd: Davíð S. Sigurðsson

bara steini pwnar lögguna enn eina ferðina ;)

Davíð S. Sigurðsson, 29.4.2008 kl. 17:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband