10.12.2008 | 18:08
Ísland eftir áramót..........
Annaðhvort vaknar fólk eða við eigum eftir að sjá landið í rúst.
Reiðin eykst með hverjum bílunum sem er tekinn uppí skuldir sem við SKULDUM EKKI.
Heimili hverfa og atvinna hverfa og rikistjórnin heldur að þeir geti bara litið undan.
Það er ung reið kynslóð sem SAMÞYKKIR EKKI ÞESSI GLÆPASAMTÖK.
Með illu mun illt vera rekið út.
Í guðs bænum rikisstjórn drullist til að koma á móts við almenning áður en við missum stjórn á öllu..........
Slysaskot varð pilti að bana | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hverjum bíl? Það var enginn sem neyddi þetta fólk til þess að maxa sig út með lánum og yfirdrætti til þess að taka þátt í lífsgæðakapphlaupinu. Það vissu allir sem vildu vita að góðærið myndi ekki endast og ef þetta ágæta fólk hafði ekki vit á því að koma sínum málum í sómasamlegt lag áður en það endaði verður bara að gjöra svo vel og taka einhverja ábyrgð á sínum málum. Vissulega eiga stjórnvöld og bankakarlarnir sök á máli líka, en það er engu síður hræsni í fólki sem skuldsetti sig upp fyrir haus að reyna að kenna öðrum um hvernig er komið fyrir sér.
Ég er ungur en ég er ekki reiður. Ég var skynsamur og tók lítið þátt í góðærinu. Ég þurfti ekki að kaupa mér nýjan bíl, nýtt hús eða 40" sjónvarp. Ég er skuldlaus og ef ég missi vinnuna þá mun ég taka því og bjarga mér, en ég mun aldrei hlaupa um götur með grjót og bensínsprengjur í leit að einhverjum sökudólgi. Það gerir vitlausa fólkið
Sturla (IP-tala skráð) 10.12.2008 kl. 20:08
ég er nú bara á örorku eða réttara var því ég þigg ekki krónu meir af þeirri ölmusu og mannfyrilitningunni sem maður mætir ef mar er öryrki hehe funny shit samt,ég hef aldrei kært mig um stöðu innan kerfisins eða vera eitthvað helvitis númer,ég á 3 börn,á ekki fyrir neinu því það er ekki alveg hægt að fá vinnu núna,amma er 83 ára og hefur ca 30þus til að lifa af á mánuði,á meðan sleikir yfirstéttin á hvort öðru rjóma af mjólkurhvítum bumbum hvors annars og enginn tekur abyrgð,síðan er öskrað á þá sem er ekki sama,djöfull er meirihluti fólks bara orðinn vangefinn af heilaþvotti,skelfilegt,já molotov kokteilar og múrsteinar hljóma bara vel...........fuck them all!!!!!!
Jón Benedikt Hólm, 10.12.2008 kl. 22:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.