27.2.2008 | 23:32
Hvað varð um öll alvöru viðrinin??? Ísland átti einu sinn eitt....
Ég hef undanfarið og jú í ansi mörg ár spekúlerað mikið í Viðrinum... Og þá meina ég ekki stjórnamálamenn eða lögregluyfirvöld... Neibb ég meina svona alvöru viðrini eins og skeggjaða konan eða ofboðslega, ólöglega alltaf yfirvigtarfeiti kallinn. Og krókadílabarnið og köngulókonan. Og svo maður minnist ekki á allt litla fólkið, og hvað þá risavaxna fólkið...
Við Íslendingar eigum einn þar sem stóð manna hæstur. Og það er þessi gæða maður hér...
Jóhann Kristinn Pétursson, Svarfdælingur. Stærsti Íslendingur sem uppi hefur verið. Var hann hæsti Íslendingur sem sögur fara af, og var um tíma talinn hæsti maður í heimi, og mældist 2,34 metrar á hæð og vó þá 163 kg. Hérna er ansi góður hlekkur.
Usss þetta er svo þægilegt að hafa einn svona í bakhöndinni þegar jólaþrifin skella á...
En þetta er einmitt svona ekta Viðrini sem ég get ekki annað en dást að. Svo eru nátturulega þessi hér.
En þetta eru einmitt leikarar í myndinni Freaks sem Tod Browing gerði. Um að gera að athuga hana ef þið eruð eitthvað áhugasöm um ÞETTA.
Svo eru örfáir þarna úti með svipaðan áhuga og ég sem betur fer.
Eins og til dæmis Rob nokkur Zombie sem færði okkur gullmolana House of þousand corpes og Devil´s rejects. Og nú einning endurgerðina af hinni yndislegu Halloween þarsem Jamie Lee curtis öskraði sig hása. En hann einmitt notfærir Viðrinasafnið sitt vel í House of thousand corpes.
En málið er óháð þessu öllu saman að síðustu ár... Eftir Alheimsnetið og allar þessar endalausu sjónvarpsstöðvar, að þá bara datt botninn úr alvöru viðrinum... Nú í dag er það bara Ripleys belivie it or not eða þá Guiness bókarskræðan... En það er einmitt meiri parturinn svona manngerð viðrini eins og þessi kappi hér...
Þessi gæðamaður er nú akkúrat að ganga í gegnum það að láta breyta sér í kött... En það liggur hundurinn grafinn (hehehehe) Hann er að láta breyta sér í kött... Það er ekki eins og hann hafi fæðst með rófu, einsog ó margir sem hafa lent í því... Og það að breyta sér í minni bók þá dettur viðrinis klausan í brott...
Þessi unga snót er oft nefnd undir viðrinismælingunni nema hjá mér... Hún fæddist ekki svona... Þetta var allt saman sett í hana... Mannagerð viðrini eru ekki sönn viðrini...
Aftur á móti þessi hérna gallharða í gegn viðrini er alveg ótrulegt svona gúmmimenni... O.k kannski fussar þú og sveiar og segir "þetta er bara sjúkdómur" og já segi ég... Auðvitað er þetta sjúkdómur en þetta er einmitt einn af þessum undarlegu sjúkdómum sem hafa þau áhrif að manneskjan sem FÆÐIST með hann, fellur undir staðalinn Freak... Eða á því ylhýra... Viðrini...
En mín ástæða fyrir þessum pistli er það að ef þið kæru lesendur sem nenntuð að lesa alla leið hingað niður, getið bent mér á síður, bækur eða heimildaþætti um Alvöru viðrini ekkert mannagert dót, þá megið þið endalega senda mér litla línu í ath.semdir...
En það er auðvitað slæmar hliðar við þetta líka eins og þetta nýlega dæmi sýnir.
Þessi unga stúlka sem fæddist með átta útlimi, var höfð undir sérstöku eftirliti þegar foreldrar hennar ákváðu að láta lækna fjarlæga aukaútlimina útaf hóp fólks sem reyndi að ræna henni til að setja í sirkus... En sem betur fer komst hún undir læknishendur og slapp við það hræðilega líf að vera sýnd á sviði eins og hefði ábyggilega skeð fyrir ekkert alltaf mörgum árum síðar.
Hér eru upplýsingar um þessa ótrúlegu stúlku.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.