20.12.2007 | 13:45
Tilkynningaskylda.
Frekar fyndið... Nú er ég búinn að vera alnetslaus og það er bara stórsniðugt hehehe. Ekki það að ég ætli endanlega að flytjast inn í Ketheima heldur er bara ágætt að vera svona ótengdur. Er bara búinn að vera að skera út og mála og alles. Ætli maður smelli ekki inn kannski nokkrum myndum af afleiðingum af leiðindum mínum á því sviði hahaha.
Nei en án alls gríns þá er nú bara hreinlega eins og það vanti á mann útlim eða eitthvað þegar maður er ekki með þetta blessaða blogg virkt heima. Maður er nú farinn að sakna þess að lesa yfir hjá ykkur esskurnar.
En það er nú ekki langt í þetta þanning að maður fer nú að sjást meir hérna. En annars langaði mig bara að þakka innlitið og kveðjurnar frá ykkur öllum og óska ykkur þessa hefbundna dót... Jólastöff og yfirát bíður handans hornins og verður það gleði mikil.
En verið nú áfram yndisleg og ég get ekki beðið eftir að vera hér daglega aftur...
Athugasemdir
*sakn* til þín félagi.
Jólastu heilastur ....
Steingrímur Helgason, 20.12.2007 kl. 23:13
uss... vantar 1 stk hvítþveginn afhomma til að leiða mig í gegnum öngstræti brjáluðu kínverjana... sakna þín steini minn *knúsíknús*
Davíð S. Sigurðsson, 21.12.2007 kl. 12:19
Gleðileg jól minn kæri og hafðu það sem allra best
Margrét St Hafsteinsdóttir, 22.12.2007 kl. 20:36
Jólakveðjur til þín og þinna
Hafðu það gott og komdu fljótt í netheimana aftur.
Túrilla, 23.12.2007 kl. 18:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.