Bleika færslan....

Úúúúfffff nú er maður kominn heim með Swiss Miss í hönd og aðeins rólegri eftir ógurlegheitin í kringum rasisma og allt aþð kjaftæði... Vonandi verður maður ekki flakaður malbikaður og tjargaður og læti...

Nei ég er nú aðeins þroskaðari en það og sem betur fer er gott fólk þarna úti sem getur séð hlutina í réttu ljósi og heldur þessu öllu saman einhvern veginn, en það er bara svo auðvelt að láta þetta svokallaða fólk, sem breiðir út hatur og geggjun drekkja sér og maður hálfmissir alla von á mannkyninu... En er það ekki ákkurat það sem þessir sjúklingar vilja. Vaða áfram með ofbeldishótunum ef maður dirfist að standa aðeins til hliðar og dýrka ekki bara hvíta kynið....

Heimurinn væri nú frekar sorglegur á flest alla vegu ef þetta lið kæmist upp með drauma sína, öll tónlist, öll föt, kunnátta og þróun mundi hreinlega hrynja langt aftur í fornöld...

Come on núna fólk, það er 2007, enginn er cool með þvotthelt fat á hausnum og brennandi kross í hönd.... Farið nú aðeins að opna augun og vera bara þakklát fyrir að fá að taka þátt í þessu öllu saman. Geggjað væminn um miðja nótt. En ég ætla bara að fylgjast með þessu áfram og vonandi sér maður einhverja breytingu á mínum lífsaldri....Blush

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband