Banvæna Bláa gullið...

Ja hérna hér... Ekki er maður nýbúinn að jafna sig á fréttunum um heilaétandi frumforynjuna í Fjandaríkjunum, heldur en þá er skellt á mann Oslóenskri frumusúpu með sama tilgang. Að éta mannkynið hreinlega útaf kortinu. Ég nátturulega er svo mikill með mannkynið að ég hélt í þá von að það þyrfti allavega tvo til þrjá loftsteina og allsherjar flóð og djöfullgang til að skrúbba plánetuna hreina okkur.

En nei... Það þarf greinilega ekki meira en einföldustu frumverur sem Móðir Jörð býr til í sínum verstu martröðum. En það gæti líka svo sem verið eitt allsherjar plott hjá vatnssölumannafyrirtækjum til að auka sölu sína. Bara að fletta upp í Wickipedia og finna eitthvað frumildi með ógnvænlegt nafn og tilburði og skella því fréttirnar.

Nei en annars er þetta frekar uggvænlegt að maður er umkringdur ýmsum ófrýnilegum veirum og amöbum sem geta gert flest það sem þeim sýnist. En jæja, það er þá bara kominn tími á Biohazard gallann og öndunnargrímuna og reyna að lifa þessar plágur af hehehe....

En þó ætti fólk fara að virða fyrir sér þessa plánetu aðeins og lífið á henni og fara aðeins betur með hlutina áður en allt verður yfirfullt af afmynduðum furðuverum sökum mengunnar og ógeðs sem við skiljum eftir okkur...


mbl.is Íbúar Ósló óttaslegnir vegna sníkjudýrs - þrír hafa smitast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband