9.10.2007 | 18:17
Ég skal éta köttinn og helv. hundinn líka!!!!!!!!!!!!!!!
Hvað í helv. meinar þetta svokallaða siðmenntaða fólk nú dammit.... Ég var að enda við að lesa að gæinn sem er með blaðið Inn liggur í því að það rignir yfir hann hótunum... Og afhverju spyr þú kannski, hmmm... ekki er hann nauðgari né perri né jafnvel lögfræðingur.... Nei hann dirfðist að birta uppskrift að ketti frá langtíburtulandi þar sem kisur eru snæddar, svipað og kjúklingur hérlendis. Og viti menn, haldið ekki að allur þessi velupplýsti dýravinahópur geri ha... Bara tjúllast og veður ekki bara yfir saklausann manninn heldur skítur líka yfir heila þjóð, heilt menningasamfélag. Ands. hvað svona pakk getur farið í taugarnar á mér. Sýnið allavega ykkar fordóma vel þanning að maður veit að það er gott að forðast ykkur moldkofalið.... Við sem étum hvað, súrsuð kynfæri og lambabarnahausa. Og hvað með kálfa og annað sem yrðum drepin fyrir í Indlandi. Ha á ekki bara að setja út hersveit í ykkar siðapostula nafni til að eyða út öllu því sem er ekki hreint og siðmenntað eins og þið... Ég skal segja þér það að ég elska kisur eins og flest annað en ég get þó sýnt öðrum menningasamfélugum þá virðingu að vera ekki að gjamma svona á opinberum vettvangi.........
Athugasemdir
hahahahha það eru nú þó nokkrar milljónirnar sem finnst ógeðslegt að við étum svín og beljur....
Bara af því að við höldum köttum og hundum sem gæludýrum þarf ekki að vera að þannig sé litið á þau annars staðar....
when in rome.. ;)
kiza, 9.10.2007 kl. 19:28
Einmitt hehehe... We all need a lil puss puss sona stundum...
Bara Steini, 9.10.2007 kl. 23:39
hehehe... þú ert fínn þegar þú ert pirraður:)
Heiða B. Heiðars, 12.10.2007 kl. 18:01
Harhar.... Ég missti mig aðeins.
Bara Steini, 12.10.2007 kl. 18:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.